Friday, January 31, 2003

Framsókn hjá Framsókn

Jón Kristjánsson gerði í dag góðverk. Hann tók ákvörðun sem verður, að ég held, fordæmisgefandi í virkjunarmálum Íslendinga í framtíðinni. Hann ákvað að virkja ,,rétt," þ.e. að hafa bæði umhverfis og hagkvæmnissjónarmið að leiðarljósi. Þetta er eitthvað sem bera að fagna og túlka sem fyrsta ásinn úr ermi Framsóknarflokksins í kosningabaráttunni. Þó skal ég ekki efast um heilindi og ást Jóns á náttúrunni. Ég kýs að útlista framkvæmdinni ekki hér, enda búið að skrifa um hana fleiri blaðsíður, bæði í frétta-, morgun-, og dagblaðsins.

Í ljósi þessarar frábæru ákvarðanar skipaðs umhverfisráðherra hafa þó heyrst gagnrýnisraddir þeirra sem aldrei eru sáttir. Þetta hefur einkum verið frá þeim félögum, Friðiriki Sophussyni og Steingrími J. Sigfússyni. Báðir eru mjög ósáttir, hvor í sína áttina. Það er lýsandi fyrir gróðahugsun landsvirkjunar að kvarta yfir þessu sem er annars frábær niðurstaða fyrir alla landsmenn, og landsmenn eiga víst Landsvirkjun. Einnig lýsir það ágætlega Þjóðverjalegum hippahugsjónum Steingríms að vera hreint út sagt fúll yfir því að ekki hafi verið hætt við virkjun algerlega. Þetta lýsir báðum mönnum ágætlega og vekur upp spurningar um það hvernig þessum mönnum er treystandi, hver í sinni stöðu.


ÁGÁ
Rís franska heimsveldið upp á afturfæturna og hræðir Georg gírlausa, eða eru menn að stabílisera efnahaginn?

Franska heimsveldið hefur heldur betur verið að minnka í áhrifum undanfarin misseri. Þeir ráða yfir fáum nýlendum, hagkerfi þeirra hefur minnkað hlutfallslega miðað við önnur og Frakkar hafa misst örlítið af því leiðinlega stolti og þjóðernishyggju sem hefur einkennt þessa annars ágætu þjóð. Fransmenn lifa þó enn á fornri frægð og hafa því fast sæti í öryggisráði sameinuðu þjóðanna. Því fagnar friðelskandi fólk enda hafa þeir neitunarvald og hyggjast nota það er kosið verður um hvort SÞ skuli taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn Írak.George Bush hefur ekki látið þetta á sig fá fyrr en nú og hefur í sífellu talað um að einhliða aðgerðir séu kostir sem hann sé tilbúinn að velja ef ekki fæst stuðningur SÞ.

Það virðist þó sem Bush hafi fengið einhverja bakþanka og er enn á ný farinn að tala um diplómatískar leiðir. USA Today segir hann allavega vera að hugsa um að gefa Hussein lokafrest til afvopnunar. Það er góð tíðindi þó svo að flest bendi til þess að árás muni verða reyndin innan skamms.

Það vakna þó spurningar í ljósi þessarar ákvörðunar forsetans. Gæti verið að að forsetinn sé einfaldlega að reyna að halda olíuverði niðri sem lengst áður en til árásar verður? Það er að mínu mati ekki svo fjarstæð hugmynd þar sem hann hefur lítið gert annað en að herðast undanfarið.

Sjálfur vona ég að Frakkinn eigi enn nokkra ása uppi í erminni en útiloka ekki að þetta sé herkænska í efnahagsmálum. Eftir á að hyggja hlýtur það þó að vera ólíklegt að það séu efnahagslegar forsendur sem Bush hefur að leiðarljósi, þar sem hann hefur ekki þótt verðmætur leikmaður í þeim geira.


ÁGÁ

Tuesday, January 21, 2003

Borgarráð samþykir nútímalistaverkasafn í Reykjavík

Ánægjulegar fréttir af menningarmálum höfuðborgarinnar. Pétur Arason, listaverkasafnari og spíra, hefur gert samning við borgina um að safna þeirra hjóna verði opnað almenningi. Þar er að finna um 400 verk, að miklu leiti eftir erlenda listamenn. Safn þetta er að Laugarvegi 37 og hvet ég alla sem eiga leið þar hjá til að líta við. Þó veit ég ekki nákvæmlega hvenær safnið verður opnað.


ÁGÁ
Ísraelar láta rífa niður verslanir á Vesturbakkanum

Ísraelski herinn lét rífa niður rúmlega 60 verslanir og smærri fyrirtæki í þorpinu Nazlat Issa, sem er nærri bænum Nablus, á Vesturbakkanum í dag. Ísraelar segja að Palestínumenn hafi reist byggingarnar án þess að fá til þess leyfi. Palestínumenn á Vesturbakkanum saka hins vegar Ísraela um að kippa fótunum undan efnahag þeirra, að sögn BBC. Þeir segja að Ísraelar hafi refsað þeim fyrir styðja við bakið á uppreisn Palestínumanna (intifada).
Í þorpinu var markaður með 170 verslunum, sem var ein helsta tekjulind íbúa Nazlat Issa. Eigendur fyrirtækja og verslana segja að herinn hafi gefið þeim 24 klukkustundir til þess að tæma byggingarnar. Í morgun voru jarðýtur sendar til þorpsins til þess að brjóta niður byggingar á markaðnum. 300 hermenn voru einnig sendir á vettvang.

Margir Palestínumenn eru sagðir hafa mótmælt framferði Ísraela á Vesturbakkanum, en herinn mun hafa beitt táragasi gegn mótmælendum.
mbl.is



Þessi frétt er stolin af mbl.is. Hérna segir frá því að Ísraelar voru að rífa niður hátt í 200 verslanir í eigu Palestínumanna vegna þess að þær eiga að hafa verið byggðar í leyfisleysi. Þvílík hræsni og viðbjóður. Hvað hafa ísraelskir landtökumenn byggt mörg þúsund hús í leyfisleysi? Og hvað myndi gerast ef Jasser sjálfur settist upp í jarðýtu og ryddi einu slíku úr vegi fyrir heilsugæslustöð eða apóteki? Jú, hann væri skotinn og síðan yrði æstum múgnum tvístrað með táragasi og þau skotin með kúlubyssum eða jafnvel AK-47. Þetta sýnir nú hvað Ísraelar eru að byggja á góðum málstað.


ÁGÁ

Tuesday, January 14, 2003

Fréttablaðið hliðhollt Samfylkingu?

Nú hefur því stundum verið fleytt að fréttablaðið sé hliðhollt Samfylkingunni. Þetta er eitthvað sem fer minna í taugarnar á mér, þar sem ég er líklegur til að kjósa þann flokk, en fer þeim mun meira í taugarnar á öðrum. Það er ekki í fyrsta skipti sem óháð dagblað tekur frekar afstöðu með einum flokki en öðrum og því er ég ekki að ergja mig yfir því, auk þess sem DV og Morgunblaðið hafa undanfarið verið kennd við Sjálfstæðisflokk (Morgunblaðið reyndar frá upphafi).

Það er hinsvegar fréttamatur þegar Fréttablaðið er farið að athuga gróðurmoldina fyrir flokkinn. Þetta er það sem ég tel hafa verið gert þegar Fréttablaðið gerði skoðanakönnun þar sem kannað var viðhorf landsmanna til landsvirkjunar. Nú hafa Samfylkingarmenn fengið boð um að hafa sig hæga í umræðunni um Kárahnjúka, þar sem 60% þjóðarinnar segist hlynnt virkjunum. Þetta er að sjálfsögðu ekki til sóma fyrir blað sem segist óháð. Þó tel ég blaðið vera ágætis lesningu sem hefur breytt fjölmiðlaumhverfi landsins. Því ætla ég ekki að dæma þetta ágæta rit af þessu eina atviki, sérstaklega í ljósi þess að það virðist heldur hliðholt mér og mínum skoðunum.


ÁGÁ
Ég skrifaði bréf, svo hljóðandi, til Valgerðar Sverrisdóttur í kvöld. Þar vil ég gefa henni tækifæri til að svara fyrir ummæli sín í garð Svía.

Akureyri þriðjudagur 14. janúar

Er ég las fréttablaðið í dag þótti mér undarlegt að þú skyldir gagnrýna Svía sem þjóð, vegna eins sænsks verktakafyrirtækis. Ég get ekki séð að sænska þjóðin og kjarnorkuver hennar komi NCC International AS við á einhvern hátt. Ég skrifa reglulega pistla á heimasíðu mína þar sem ég gangrýni gjarnan það sem mér finnst að mætti betur fara í þjóðfélaginu og skrifaði í dag einn slíkan um þessi ummæli. Ég er þó sanngjarn maður og datt í hug að gefa þér tækifæri til að útskýra þetta eða leiðrétta ef um misskilning er að ræða. Þá myndi ég, með leyfi frá þér að sjálfsögðu, birta svar þitt við fyrsta tækifæri. Kv. Árni Gunnar Ásgeirsson

Vonum að Valgerður svari sem fyrst enda veit ég að þúsundir manna bíða spenntir.


ÁGÁ
Ríkið og ÁTVR

Fyrir mörgum er þetta sami hluturinn en vissulega er ríkið stærra batterí en ÁTVR. Þó virðist áfengisverslun ríkisins vera einskonar óskabarn rískistjórnanna, sérstaklega þeirrar sitjandi.

Fyrir skömmu hækkaði fjármálaráðherra verð á sterku áfengi og tóbaki. Þetta var sagt vera hækkun í kjölfar hærri bóta til aldraðra og öryrkja. Geir talaði um það sem sjálfsagðan hlut að hækka þessar neysluvörur því að einhversstaðar frá verða peningarnir að koma. Það sem ég er ósáttur við er að þeir sem neyta áfengis og tóbaks eru látnir gjalda fyrir hækkanir bóta, ekki bindindismenn og tóbakslausir. Hversu lengi er hægt að réttlæta hækkanir á þessar vörur á grundvelli forvarna? Í fyrsta lagi hlýtur smygl og bruggun að aukast lítillega í hvert skipti sem þær hækka. Í öðru lagi er ekki sanngjarnt að láta þetta endalaust bitna á sama fólkinu. Þó að allir viti að þetta eru ekki hollustuvörur, þá gengur ekki að viðhalda slíku fjármálabraski í skjóli haftastefnu.

Hvað varðar ÁTVR þá er það gömul og seig lumma að halda því fram að áfengi sé selt háu verði til að koma í veg fyrir ofneyslu þjóðarinnar. Sjáið hvað ÁTVR er að gera þessa dagana. Þeir eru að þagga niður í sauðsvörtum almúganum með skrauti eins og heimsíðu, fallegum vínhillum og vínsérfræðingum til handa kúnnum. Þetta er að sjálfsögðu bara aukakostnaður fyrir íslensku þjóðina. Þetta er gert til að ekki sé hægt að kalla þjónustu lélega og halda því fram að einkaaðilar gætu gert miklu betur. Staðreyndin er sú að ríkisstjórn er að halda í lágmarki gagnrýnisröddum, því að þeir mega ekki missa þessa tekjulind. Svo segir fólk að ríkisbankarnir hafi skapað lélegt samkeppnisumhverfi því að á þeim lá ríkisábyrgð og því varð að selja þá. Hvað eru þeir að gera með ÁTVR? Halda í tekjulind sem er svo öflug að hún, ein og sér, getur hækkað bætur í velferðarkerfinu íslenska. Hvernig væri að sætta sig við að fá skattpeninginn? Það er nú einu sinni 80% skatthlutfall á þessum vörum.


ÁGÁ
Hallgrímur á sama máli

Heh, ekki nema tíu mínútum eftir að ég póstaði þessa grein hér fyrir neðan, þá kemur Hallgrímur Thorsteinsson, útvarpsmaður á Sögu, og segir nákvæmlega hið sama og ég. Hallgrímur hefur því verið kjörinn maður dagsins á arnigunn.tk
Kárahnjúkar og sænskir andstæðingar
Að fyrstu vil ég afsaka langt hlé á pistlum, en það stafar af morfísrifrildum Gettu Betur æfingum og öðru brasi. Ég vil þó ekki vera með afsakanir eða orðlengingar varðandi það.

Á forsíðu fréttablaðsins í dag, þriðjudag, er grein sem hefur fyrisögnina ,,Andsataðan vart sæmandi." Þar er talað við vinkonu mína Valgerði Sverrisdóttur. Þar kvartar hún yfir andstöðu við Kárahnjúkavirkjun og sýnir mótmælendum lítinn skilning. Við sem erum ekki hippar, en höfum þó gaman af því að skoða landið, erum eðlilega í efa um ágæti virkjunarinnar. Ekki síst vegna þess að það virðist fyrirfram ákveðið að virkjunin mun verða rekin hagnaðarlaust til margra ára. Svo má ekki gleyma umhverfissjónarmiðum, en þó ítreka ég að ég er enginn hippi og því síður vinur Kolbrúnar Halldórsdóttur.

Það sem sker sig úr þessu viðtali við Iðnaðarráðherra, er það að hún segir Svía hafa komið einkennilega fram gagnvart Íslendingum í þessu máli. Fréttablaðið útskýrir þetta með því að sænskt verktakafyrirtæki, NCC International AS, hafi hætt við að gera tilboð í aðrennslingöng við Kárahnjúkavirkjun.
,,Þeir þykjast geta haft eitthvað yfir okkur að segja. Svo er þetta þjóð sem meðal annars notar kjarnorku til raforkuframleiðslu. Mér finnst hægt að tala um tvískinnun hvað þetta varðar." segir Valgerður.

Þá spyr ég:,,Hvar er þessi tvískinnungur?" Ekki var það NCC International AS sem skipaði fyrir um byggingu orkuvera? Þetta eru ekkert nema fyrsta flokks fordómar hjá ráðherra. Hún ákveður bara að allir Svíar séu hlynntir kjarnorku. Eru Bónus-feðgar endilega hlynntir Kárahnjúkavirkjun af því að þeir eru Íslendingar, eða hefðu þeir samþykkt á Kópavogsfundi ef þeir hefðu fengið tækifæri til? Þetta er sérlega heimskulegt hjá Valgerði. Hún dregur Svía í dylka, þeir sem eru umhverfinssinnar eru greinilega ekki Svíar fyrst að kjarnorka er notuð þarlendis. Skelfilega getur svona lið verið vitlaust.


ÁGÁ

Monday, January 06, 2003

Wake up it´s a beautyfull morning

Þetta er viðlag úr texta lagsins ,,Wake up Boo" eftir ,,The Boo Radleys." Þessi texti var ekki það fyrsta sem mér kom í huga er ég reis úr rekkju í morgun, en það átti fljótlega eftir að breytast. Er ég gekk að útidyrahurðinni til að ná í fréttablaðið hafði ég ekki hugmynd um hvað biði mín. Á forsíðu blaðsins er frétt þar sem sagt er frá könnun á fylgi stjórnmálaflokka. Það eru ekki tíðindi. Niðurstöður könnunarinnar eru hins vegar stórtíðindi, þar mælist Samfylking með 39% fylgi á landsvísu, 2% stærri en Sjálfstæðisflokkur.

Nú er ég ekki farinn að fagna sigri Samfylkingarinnar og Ingibjargar Sólrúnar í Alþingiskosningum 2003. Það sem ég er að gera er, ja ... maður er að glotta í kampinn eins og segir í öðru ágætu lagi, og það jólalagi svona á síðasta degi jóla. Þessi niðurstaða er óneitanlega sólargeisli í skammdeginu hjá jafnaðarmönnum og verður sérlega gaman að hitta hina ýmsu strumpa í dag. Þó svo að strumpar séu ekki að tapa af ráði, þá eru þeir jú að missa anker sitt, bændaflokk framsóknarmanna. Og já, þá verður maður að minnast á það, samkvæmt þessari könnun myndi Frasókn missa helming þingsæta sinna. Þeir eru í 10% sléttum og lækka um 8,4% frá því í kosningum 1999. Þetta segir okkur aðeins eitt, Íslendingar eru að þróast, borgarvæðingin hófst fyrir hundruðum ára í Evrópu og stóð yfir alla síðustu öld á Íslandi og Íslendingar fagna þróun með afneitun hlutleysissamtaka Framsóknarflokks.

Í dag er góður dagur, í dag er dagurinn sem skammdegið hættir að vera skammdegi og verður bara lítilmótleg nótt að degi.


ÁGÁ
Málstaðurinn verður enn slappari

Í dag voru gerðar tvær sprengjuárásir í Tel Aviv, í Ísrael. Þar sem fréttamiðlum ber ekki saman um tölu látinna, þá segi ég þá hafa verið á bilinu 17- 22. Árásirnar tvær voru með um mínútu millibili og hafa Hamassamtökin og Jihad lýst ábyrgð á verknaðinum. Heimastjórn Arafats hefur að sjálfsögðu fordæmt árásirnar og heitir því að sækja ábyrga til saka.

Hann var hins vegar ekki af sama toga, hryðjuverkamaðurinn sem stal flugvél á Frankfurt flugvelli í dag. Hann hótaði að fljúga vélinni á Evrópubankann, en Frankfurt er helsta miðstöð viðskipta í Evrópu. Hann lét þó ekki af áflugi verða heldur lenti vélinni eftir að hafa hringsólað yfir borginni um nokkurn tíma.
Það sem er nú merkilegt við þetta ómerkilega flug, sem skapaði reyndar töluverða hræðslu í borginni, var það að maðurinn sagðist vilja beina athygli heimsins að minningu Judith Resnik sem lést í Challenger - geimferjuslysinu. Það slys átti sér stað árið 1986. Nú þykir mér ,,hryðjuverkamenn" komnir með heldur slappan málstað ef svo er komið að menn steli flugvélum til að minna á látna geimfara. Held að það væri réttara að stela flugvél til að benda á tilgangsleysi geimferða. Þegar heil heimsálfa lifir við bág kjör, þá tel ég ekki rétt að eyða hundruðum milljarða í einhverjar geimferðir sem gera nánast aldrei gagn. Geimferðir eru fyrst og fremst hégómi frá tímum kaldstríðsins.


ÁGÁ

Sunday, January 05, 2003

Björninn svarar af bragði

Ég fékk póst frá Birni í dag þar sem hann sagðist hafa kallað útvarpsshluta ríkisútvarpssins fyrrnefndur nafni í mörg ár. Hann sagði engan hroka koma þar nálægt. Síðast en ekki síst taldi hann afstöðu mína mjög undarlega varðandi þetta. Ég skal vera fyrstur til að viðurkenna að ég hugsaði með mér að hann gæti kallað Rás2 sínu rétta nafni. Björn velur að kalla þetta hljóðvarp þar sem fréttaflutningur er á báðum rásum RÚV samtímis, og því væri rangt að kalla þær Rás1 eða Rás2. Því voru mistökin algerlega mín megin.

Það er hins vegar umhugsunarefni að maður skuli vera farinn að túlka orð Bjarnar sem hroka, hvort sem er á prenti eða í orði, við nánast hvert tækifæri. Alltaf virðist Björn hrokafullur. Þetta er væntanlega sú mynd sem hann málaði af sjálfum sér í kosningabaráttu síðasta vor, þar sem hann var með eindæmum hrokafullur í öllum þáttum, auglýsingum o.s.frv. Þetta er eitthvað sem háttvirtur Björn þarf að laga ef hann ætlar að vera einhvers virði í komandi kappræðuþáttum fyrir þingkosningar.


ÁGÁ
Bjössi og Hljóðvarp Ríkisins?

Ég var að skoða pistil á bjorn.is, heimasíðu Björns Bjarnasonar borgarfulltrúa, þingmanns og fyrrum menntmálaráðherra. Þá rek ég augum í það að hann kallar Ríkisútvarpið, RÚV, hljóðvarp ríkisins. Í sjálfu sér móðgaðist ég lítið af því sem hann sagði um Samfylkinguna eða Ingibjörgu, þrátt fyrir að glöggir menn hafi tekið eftir því að ég er heldur kratískur í skrifum, heldur fannst mér verulega einkennilegt að hann skildi ekki geta kallað RÚV sínu rétta nafni. Ber hann ekki virðingu fyrir þessu fyrirtæki sem hann hafði yfirráð yfir fyrir innan við ári síðan, eða er þetta almennt kallað hljóðvarp ríkisnins meðal þingmanna, ráðherra eða sjálfstæðismanna. Allavega þá fannst mér þetta ekki viðeigandi og sendi honum þessa fyrirspurn:

Ágæti borgarfulltrúi.
Ég las pistil þinn um Ingibjörgu okkar og þrátt fyrir að ég sé nú hvorki heiðblár né ,,rétt" - hentur þá fór það helst fyrir brjóstið á mér að þú kallar RÚV hljóðvarp ríkisins. RÚV stendur fyrir ríksútvarpið, eins og þú veist sem fyrrum menntamálaráðherra. Því þætti mér gaman að vita hvers vegna þú kallar það ekki því nafni. Eins og ég túlka þetta, þá er þetta eins og hrokafull athugasemd frá rótækum ungum manni og á alls ekki við hjá manni sem hefur haft yfirumsjón með þessu ágæta fyrirtæki ríkisins. Hvað vakir fyrir þessum athugasemdum? Ert þú, fyrrum menntamálaráðherra, og góður með þig til að kalla RÚV sínu rétta nafni, eða eru einhverjar skýringar á þessu?

Kv. Árni Gunnar Ásgeirsson


Ég bíð að sjálfsögðu eftir svari frá Birni og það mun verða birt hér ef hann leyfir.


ÁGÁ

Thursday, January 02, 2003

Yfirþyrmandi ranglæti í Kína

Það var áberandi í áramótaskaupi sjónvarpsins, heimsókn Kínaforseta, Jiang Zemin. Það var ekki að ástæðulausu enda var öll umgjörð þessarar heimsóknar fáránleg. Ríkisstjórnin bannaði Falun Gong meðlimum að koma til landsins. Það leiddi af sér að Íslendingar fóru að beita fasískum aðgerðum gegn asísku fólki. Þessar aðgerðir fólust í því að asískt fólk fékk ekki að koma til landsins, á meðan evrópskir og amerískir Falun Gong meðlimir fengu að spóka sig í íslensku sólinni eins og montnar heiðlóur á vorin. Og til hvers, jú, við vorum með gest sem átti að líða eins og heima hjá sér. Hann vildi ekki sjá mótmæli og þess vegna varð að taka af fólki rétt til friðsamlegra mótmæla, þ.e. einn af máttarstólpum lýðræðissamfélags, tjáningarfrelsið. Það er gott til afspurnar frá okkur Íslendingum að við veljum hverjir, hve margir og hvar fólk má mótmæla.

Þessi pistill snýst þó ekki um þetta atvik heldur það sem við vorum að verja. Nú á næstunni verður dæmt í máli tveggja kínverskra verkalýðsleiðtoga sem er gefið að sök að hafa skipulagt og tekið þátt í mótmælagöngu. Þessi ganga var til að mótmæla spillingu og og töfum á greiðslu launa og ýmissa bóta. Þetta kallast á kínversku undirróðursstarfsemi gegn landsstjórninni og við því liggur dauðarefsing. Ekki bætir úr skák að þeir verða einnig ákærðir fyrir að skrifa undir áskorunarskjal hjá Lýðræðisflokknum, sem er bannaður.

Það er frábært, og íslenskir ráðamenn geta sannarlega monntað sig af því, að við skulum vera tilbúin að fremja mannréttindabrot og grípa til fasisma til að vernda fólk eins og Jiang Zemin. Þarna er á ferð valdamesti maðurinn í ríki sem tekur fólk af lífi fyrir að mótmæla. Í dag langar mig ekki að mótmæla aðförum stjórnvalda að Falun Gong meðlimum eða asísku fólki, ég vil mótmæla því að fólk eins og Zemin komi til Íslands, í boði skattgreiðenda.

Það var þó greinilegt að Íslendingar lærðu eitthvað af komu Kínaforseta. Við lærðum hvernig á að lækka rostann í dónalegum mótmælendum og koma í veg fyrir að fólk noti sér stjórnarskrárbuninn rétt til tjáningar. Það er svo gaman þegar við komumst í tæri við nýja menningu.


ÁGÁ

Wednesday, January 01, 2003

Kofi Annan að gera fína hluti

Nú eru menn farnir að tala af viti um Íraksmálin. Kofi Annan gaf það út að sjái ekki grundvöll fyrir stríði í Írak eins og staðan er í dag. Hann segir að á meðan Írakar vinni með vopnaeftirlitsmönnum sé ekki rétt að grípa til vopna. Þá segir Annan að bíða eigi fram til 27. janúar með að íhuga stríð, en þá á skýrsla eftirlitsmanna að vera tilbúin. Þetta eru tíðindi sem ber að fagna þó svo að ólíklegt sé að Bush bíði ef hann langar að slást.

ÁGÁ
Davíð keypti ekki ölið ... það var Jón Ólafsson

Eins og undanfarin ár var þátturinn kryddsíld sýndur á gamlársdag. Fyrir þá sem ekki vita þá er það þáttur þar sem formenn stjórnmálaflokkanna koma saman og ræða mál ársins sem er að líða.

Það sem stóð upp úr í þætti þessum var rifrildi Össurar Skarphéðinssonar og Davíðs Oddssonar. Þetta var sérlega leiðinlegt rifrildi og þeim báðum til vansæmdar. Það sem var áberandi í þessu rifrildi var það hvað Davíð var áberandi ölvaður, og það í boði óvinarins, Jóns Ólafssonar.

Ætli Jón og Davíð séu búnir að sættast, eða er öl annar maður?


ÁGÁ