Kúrað með frönskum konum
Það er alltaf gaman að heyra af nýjum kúrum. Eftir því sem ég best veit eru til kúrar við öllu. Sumir fara á próteinkúra, aðrir á smáskammtakúra en flestir á megrunarkúra. Nýlega kom út bók í íslenskri þýðingu sem ber heitið Franskar konur fitna ekki. Þessi bók kennir manni kúr sem er ekki beint megrun, af því að maður á að borað það sem manni finnst gott, en léttir mann samt. Bókin byggir á þeirri ályktun að franskar konur borði það sem þeim finnst gott án þess að fitna.
Af þessum sökum þóttir mér þessi frétt mjög skemmtileg, ekki síst setningin: Mun fleiri konur eru of feitar en karlar í Frakklandi. Þetta segir svo sem lítið um ástandið í Frakklandi miðað við umheiminn, og þeim tölum nenni ég ekki að fletta upp. En að 5,9 milljónir Frakka eigi við offitu að stríða og að konur séu mun líklegri til að vera of feitar er vissulega kusk á flibba kúrasölukonunnar.
En eins og titillinn gefur til kynna þá er skemmtilegt að nú eru fleiri franskar konur orðnar mjúkir, heitir og efnilegir kúrarar.

1 Comments:
fólk á bara að drulla sér í hungurverkfall ef það vill grennast. Þá getur það komið meiningum sínum fram í leiðinni...
Post a Comment
<< Home