Wednesday, August 16, 2006

Öfugsnúningur

Jæja, þá er liðinn nokkur tími frá hinsegin dögum og orðið óhætt að tala um samkynhneigð á vitrænum nótum. Auglýsing í morgunblaðinu að gera allt vitlaust, en metaðsókn í gönguna. Allir glaðir, nema þeir sem fá ekki nógu marga homma til að afhomma og svo hinir sem finnst ljótt að segjast geta afhommað fólk.

Satt að segja er mér alveg nákvæmlega sama hvort hægt sé að afhomma fólk. Það má vel vera að það sé hægt. En við rekumst auðvitað á vandamál þegar við sjáum að ekki er hægt að vita hvort homminn hefur breytt kynhegðun, eða hvort hann hefur breytt kynlöngun sinni. Það er varla guði þóknanlegt að hafa mikla löngun til að ríða manneskjum af sama kyni, en mikinn vilja til að ríða konunni sinni sem maður nældi í til að vera guði þóknanlegur.

Á miðöldum var kirkjunni mjög annt um rétta trúariðkun (orthopraxy). Heiðingjar fengu að leika lausum hala, svo lengi sem þeir létu eins og kristnir menn, mættu til messu eða færu með bænir og sálma... eða eitthvað svoleiðis. Einhverjir guðfræðingar föttuðu á endanum að það væri auðvitað fáránlegt að heimta rétta trúariðkun frammi fyrir almáttugum og alsjáandi guði og við tók rétt, eða einlæg, trú (orthodoxy).
Að sama skapi er auðvitað fráleitt að telji sig hafa breytt um kynhneigð fólks þegar maður hefur þvingað kynhegðunina í aðra átt.

Það er auðvelt fyrir kirkjunnar menn að benda á hve samkynhneigð er illa séð hjá guði. Það stendur skýrum stöfum á nokkrum stöðum í biblíunni. Erfiðara er fyrir þá að réttlæta af hverju þeir fylgja ekki öllu hinu sem stendur skýrum stöfum í sömu bók, s.s hvers vegna þeir borða svínakjöt, leyfi konunni sinni að komast upp með ótrúlegustu hluti, hýði ekki börnin sín og svo margt fleira.

En hvaða vandamál fylgja samkynhneigð önnur en þau að litið er niður á hópinn í heild? Ég sé ekki að þau séu nokkur. Auðvitað er leiðinlegt að geta ekki eignast börn með maka sínum, en möguleikarnir á þeim vettvangi eru að verða fjölbreyttari. Eina vandamálið sem stendur eftir eru fordómarnir, og þeir verða einmitt til vegna þess að einhver segist geta læknað samkynhneigða og af því að kristnum mönnum þykir vænna um vissa kafla í biblíunni en aðra.

Ef við tökum í burtu andalæknanna, prestana og faríseana verður enginn til sem þarfnast lækningar við samkynhneigð. Allir geta bara gert það sem þeim sýnist, svo lengi sem það er í samræmi við landslög.

Meira má lesa um málefni samkynhneigðra hér

Friday, August 11, 2006

Hvílík endemis vitleysa

Ég heyrði vikulegt þvaður Jakobs Frímanns og Helgu Guðrúnar á NFS í dag. Þar var verið að ræða um hryðjuverkaógnina. Jakob Frímann benti réttilega á að öll tengsl okkar við Bandaríska utanríkisstefnu og vera okkar í NATO væru áhættuþættir. Helga Guðrún mótmælti þessu og sagði það handahófskennt hvar hryðjuverkamenn tengdir Al Qaida láti til skarar skríða. Hún sagði þá einfaldlega leggja til atlögu þar sem varnirnar eru veikastar.

Hvílíka endemis vitleysu hef ég aldrei áður heyrt frá fullvaxta manneskju. Sprengingar Al Qaida í Afríku voru á sendiráð Bandaríkjanna. Sprengingin á Balí var á diskóteki sem vestrænir ferðamenn sótt, langflestir Ástralir, langtíma bandamenn BNA. Sprenginar á Spáni voru gegn Spánverjum sem höfðu stutt innrás í Írak og sent þangað her. Sprengingarnar í London voru gegn Bretum sem hafa verið helstu stuðningsmenn Bandaríkjanna og haft mikið herlið í Írak.

Þetta virðist voðalega lítið handahófskennt. Myndum við ekki búast við sprengingum í Þýskalandi og Frakklandi, sem eru tvö af þremur stærstu löndum Evrópu, ef allt væri bara af handahófi. Í þessum löndum er gríðarlegur fjöldi Múslima og annarra Araba. Ef Al Qaida hefði mikinn áhuga á sprengingum þar, væru samtökin einfaldlega búin að sprengja.

Að segja þessar sprengingar handahófskenndar er eins og að segja að tilviljun ein ráði því hvort við stígum í hægri eða vinstri fótinn.