Thursday, January 02, 2003

Yfirþyrmandi ranglæti í Kína

Það var áberandi í áramótaskaupi sjónvarpsins, heimsókn Kínaforseta, Jiang Zemin. Það var ekki að ástæðulausu enda var öll umgjörð þessarar heimsóknar fáránleg. Ríkisstjórnin bannaði Falun Gong meðlimum að koma til landsins. Það leiddi af sér að Íslendingar fóru að beita fasískum aðgerðum gegn asísku fólki. Þessar aðgerðir fólust í því að asískt fólk fékk ekki að koma til landsins, á meðan evrópskir og amerískir Falun Gong meðlimir fengu að spóka sig í íslensku sólinni eins og montnar heiðlóur á vorin. Og til hvers, jú, við vorum með gest sem átti að líða eins og heima hjá sér. Hann vildi ekki sjá mótmæli og þess vegna varð að taka af fólki rétt til friðsamlegra mótmæla, þ.e. einn af máttarstólpum lýðræðissamfélags, tjáningarfrelsið. Það er gott til afspurnar frá okkur Íslendingum að við veljum hverjir, hve margir og hvar fólk má mótmæla.

Þessi pistill snýst þó ekki um þetta atvik heldur það sem við vorum að verja. Nú á næstunni verður dæmt í máli tveggja kínverskra verkalýðsleiðtoga sem er gefið að sök að hafa skipulagt og tekið þátt í mótmælagöngu. Þessi ganga var til að mótmæla spillingu og og töfum á greiðslu launa og ýmissa bóta. Þetta kallast á kínversku undirróðursstarfsemi gegn landsstjórninni og við því liggur dauðarefsing. Ekki bætir úr skák að þeir verða einnig ákærðir fyrir að skrifa undir áskorunarskjal hjá Lýðræðisflokknum, sem er bannaður.

Það er frábært, og íslenskir ráðamenn geta sannarlega monntað sig af því, að við skulum vera tilbúin að fremja mannréttindabrot og grípa til fasisma til að vernda fólk eins og Jiang Zemin. Þarna er á ferð valdamesti maðurinn í ríki sem tekur fólk af lífi fyrir að mótmæla. Í dag langar mig ekki að mótmæla aðförum stjórnvalda að Falun Gong meðlimum eða asísku fólki, ég vil mótmæla því að fólk eins og Zemin komi til Íslands, í boði skattgreiðenda.

Það var þó greinilegt að Íslendingar lærðu eitthvað af komu Kínaforseta. Við lærðum hvernig á að lækka rostann í dónalegum mótmælendum og koma í veg fyrir að fólk noti sér stjórnarskrárbuninn rétt til tjáningar. Það er svo gaman þegar við komumst í tæri við nýja menningu.


ÁGÁ

0 Comments:

Post a Comment

<< Home