Friday, April 25, 2003

BBC kvatt með trega

Nú hafa aðdáendur BBC world eflaust tekið eftir því að ekki er lengur sent út frá þeirri sjónvarpstöð utan útsendingartíma RÚV. Þetta eru vissulega sorgleg tíðindi fyrir alla atvinnuleysingja, húsmæður, svefnleysingja og fleiri minnihlutahópa sem hafa notið góðs af þessum útsendingum. Þess vegna kveðjum við með miklum trega þessar útsendingar en þökkum RÚV jafnframt fyrir að hafa veitt okkur þessar góðu stundir.

Wednesday, April 23, 2003

Þess ber að geta að vefurinn er í vinnslu og hefur ekki tekið á sig endanlega mynd. Hið nýja litaþema vil ég kalla ,,Í sumarskapi" enda segir það sig nánast sjálft. Þeim sem líkar ekki nýja lúkkið ættu að lesa gamla pistla í archive, en þar er gamla lúkkið enn til staðar.
Yfirþyrmandi textun til góðs fyrir minnihlutahópa

Sjónvarpssvið ríkisbáknsins, að sumra mati, hefur ákveðið að þrefalda textun á sjónvarpsefni. Þetta kom fram í fréttun bylgjunar og útvarps sögu í dag. Þetta er að sjálfsögðu stórt skref í átt að jafnrétti Íslendinga til sjónvarpsáhorfs, enda töluvert magn heyrnalausra og -skertra hérlendis.

Nú eiga einhverjir eflaust eftir að kvarta yfir þessari peningaeyðslu ríkisins en ég tel þetta ekkert nema fagnaðarefni. Þetta nýtist ekki bara heyrnaskertum, heldur einnig útlendingum sem læra af þessu íslensku. Þetta tel ég vera einmitt það sem RÚV á að standa fyrir, sjónvarp fyrir alla, ekki flesta.

Einnig vil ég lýsa ánægju minni á þáttunum ,,Viltu læra íslensku," sem sýndir hafa verið á síðkvöldum undanfarið. Tel ég að þá þætti ætti að sýna oftar, og að sjálfsögðu ætti einnig að gera fleiri slíkar seríur.

Wednesday, April 16, 2003

Kapítalistinn Jesú, Guðs sonur

Ég var að hlusta á Gunnar í Krossinum í hans vikulega útvarpsþætti á Sögu. Þar kom margt einstaklega heimskulegt fram enda við slíku að búast.

Meðal þess sem fram kom í spjalli Gunnars var að hann tók hetjulega afstöðu með stríði, svona þegar það er liðið hjá að mestu eða öllu leiti.
Hann vitnaði einning í biblíuna þar sem fram kom að Guð skipaði yfirvald, og það væri hans vilji að skipa fólk til að setja reglur og refsa. Leti?
Hann sagði að þegar Jesú hefði risið upp frá dauðum hefði hann tekið lykilinn, sem ég kann ekki öll skil á, af Satan og nú hefði sonur Guðs öll völd á jörðu og himnum.
Það leynir sér þá ekki að Jesú er einhver mesti kapítalisti sem sögur fara af, enda gyðingur, þar sem hefur látið ýmislegt yfir fólk ganga án þess að grípa inn í. Sem dæmi má nefna útrýmingar gyðinga í seinni styrjöld. Ekki vildi Jesú grípa inn í þá, sennilega af hræðslu við að raska stöðugleika á verðbréfamarkaði, en hann var að byggjast upp eftir kreppu á fyrirstríðsárum.
Nú leynist fæstum sem hlustað hafa á Gunnar að hann er mikill vinur ,,Guðs útvöldu þjóðar," en hann útskýrir þær á þá vegu að maðurinn uppskeri því sem hann sáir. Voru evrópskir gyðingar þá svona svakalega vondir, og þá svo vondir að guð, eða Jesú sem hefur öll völd, ákvað að skipa Hitler yfir Þýskaland?

Þessi götótti málflutningur Gunnars sýnir fram á það hafa ekki verið miklir spekingar sem stofnuðu Krossin, og ámóta trúarfélög. Öllu heldur hafa þeir verið tækifærissinnar með öllu, sem geta snúið út úr öllum ritningum og spakmælum herra okkar. Réttast væri að allir væru skikkaðir til að lesa biblíuna áður en þeir fermast og játa svo trú sína, á sínum eigin forsendum frekar en að láta gaura eins og Gunnar ákveða hvað orð Guðs þýða.

Tuesday, April 15, 2003

Árangur ríkisins af auknum auglýsingum og aukinni þjónustu í ÁTVR

Skemmtileg frétt af www.ruv.ishljómar svo:

Sala og neysla á áfengi aukast Í

Íslendingar drukku heldur meira áfengi í fyrra en árið áður samkvæmt tölum hagstofunnar. Áfengissalan í fyrra var samtals 18,6 miljónir lítra og jókst um rúmlega miljón lítra. Ef reiknað er í hreinum vínanda voru seldar tæpar 1,5 miljónir lítra sem er rúmum 3% meira en árið áður.

Reyndar hefur áfengisneysla aukist jafnt og þétt síðan 1995 þegar nú var 4,8 lítrar á hvern Íslending, 15 ára og eldri, og er hún nú 6,3 lítrar.

Samkvæmt þessum tölum drekka Íslendingar heldur meira en Norðmenn, svipað og Svíar, aðeins minna en Færeyingar en eru varla hálfdrættingar á við Dani og Grænlendinga sem drekka 11-12 lítra á ári.

Undanfarin 7 ár hefur orðið mikil breyting á drykkjarvenjum Íslendinga. Þeir drekka nú hátt í helmingi meiri bjór en þeir gerðu 1996 eða um 14,5 miljónir lítra, sala léttvíns hefur rúmlega tvöfaldast og er rúmar 3 miljónir lítra en heldur hefur dregið úr sölu á sterku víni sem var tæplega miljón lítrar í fyrra.


Mér fannst rétt að vekja athygli á þessu vegna þeirra athugasemda sem ég hef gert við rekstur ÁTVR og söluaðfrerðir þeirra. Er ekki úr samræmi við einkavæðingarstefnu stjórnavalda að halda ÁTVR í höndum ríkisins þegar forvarnarstefnan er greinilega fyrir bí. Eða er hægt að segja að aukið aðgengi að áfengi, auknar auglýsingar, vínsmakkanir og vínsérfræðingar til þjónustu við viðskiptavini geti verið til að draga úr neyslu? Stöðvum einokun á áfengismarkaði.

Sunday, April 13, 2003

Ríkið auglýsir ríkið, gegn ríkislögum

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni þá er ég enginn sérstakur stuðningsmaður einokunar ríkissins í áfengis- og tóbaksviðskiptum. Einnig er ég þeirrar skoðunar að endurnýja ætti lög um áfengisauglýsingar, enda eru þær þverbrotnar á degi hverjum að segja má. Þetta er að sjálfsögðu vegna formgalla. Alltaf er hægt að troða inn 0.0% einhversstaðar í auglýsingarnar þannig að þá er rauverulega ekki verið að auglýsa bjór. Þetta er allt saman hinn mesti skrípaleikur og engum til sóma.

Það hljóta þó að teljast tíðindi þegar ríkisbáknið, ÁTVR, er farið að auglýsa áfengið sem selt er í einokunarbúllum þeirra. Ekki nóg með að ÁTVR hafi komið á laggirnar heimasíðu þar sem lesa má um áfengi, verð á því o.fl, heldur eru þeir nú farnir að auglýsa utan á burðarpokunum sem veigar eru gjarnan bornar heim í. Þessa dagana er það Kronenbourg bjórinn franski sem blasir við manni á föstudögum er örtröðin er hvað mest við rætur Oddeyrar. Svo virðist sem þessi bjór sé einmitt 0.0% og því ekkert slæmt um hann að segja.

Látalætin í kringum ÁTVR eru nú orðin slík að ekki einu sinni ÁTVR getur neitað auglýsendum um að auglýsa áfengi, sem annars er bannað að auglýsa. Því vil ég, í fyrsta lagi, leyfa auglýsingar á áfengi, í öðru lagi, afnema einokun ríkis á smásölu með áfengi. Stöðvum látalætin, verum líbó og leyfum líkjörinn.

Sunday, April 06, 2003

Sjálfum sér verstir

Bandaríkjamenn sprengdu 4 Bandaríkjamenn og 12 Kúrda til bana í nótt. Þetta vildi þannig til að bílalest Bandarískra og Kúrdískra hermann átti í útistöðum við íraska hermenn. Þá var kallað á aðstoð flughersins sem beindi sprengjum sínum að lestinni en ekki Írökum. A.m.k. 44 eru særðir.

Herir Bandaríkjamanna eru nú búnir að skjóta á sína eigin menn, sprengja þá, sprengja breska þyrlu, varpa sprengjum á nágrannalönd Íraks, s.s. Tyrkland og Íran. Þetta er aldeilis ljómandi stríðsrekstur eins og allir sjá og er maður farinn að hugsa ,,prófuðu þeir engin af þessum vopnum áður en þeir notuðu þau."

Að minnsta kosti hlýtur það að vera orðið augljóst að hergögn Bandamanna eru ekki eins og öflug og þeir vilja sjálfir meina. Það er spurning hvort þeir hugsi sig aðeins betur um þegar þeir frelsa Írak, N-Kóreu, Kúbu, Súdan, Lýbíu og Frakkland.