Saturday, May 27, 2006

Ef við neyðumst til að borga einhverjum sæmileg laun er eins gott að það séu engir helvítis íslendingar

Mér fannst voðalega skrítið að heyra frá því að Landsspítalinn væri farinn að flytja inn fólk frá Danmörku til að fylla í stöður hjúkrunarfræðinga, sem mikil vöntun er á. Það er eðlilegt að forstöðumenn á Lsh reyni að leysa þann vanda sem staðið er frammi fyrir, en sú leið sem varð fyrir valinu til að leysa þetta tiltekna mál er mjög undarleg.

Lsh valdi að borga dönskum hjúkrunarfræðingum hærri laun en þeim íslensku fyrir að koma hingað í vinnu. Til að komast framhjá því að sýna raunverulegar launatölur var gerður samningur við starfsmannaleigu sem fær greiðslu frá Lsh, en hjúkrunarfræðingarnir fá svo borgað úr buddu leigunnar.

Með því að gera þetta getur hjúkrunarforstjóri á Lsh sagt: Ég veit ekki hvað þeir fá í laun, við borgum bara starfsmannaleigunni.

En ég veit að launin eru hærri en meðal hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Grunnlaun hjúkrunarfræðinga í Damörku eru um 270 þús. ísk. Á Íslandi eru þau 200 þús. Hver myndi svo sem flakka á milli landa fyrir laun sem eru lægri en viðkomandi fær nú þegar. Og það er ekki eins og hjúkrunarfræðingar eigi erfitt með að fá vinnu í Danmörku. Samkvæmt formanni félags hjúkrunarfræðina vantar 1100 hjúkkur í Danaveldi nú þegar, og vöntunin eykst ár frá ári.

Ég myndi því ætla að hjúkrunarfræðingar geti vel fengið ágæt tilboð í sínu eigin landi. Tilboðið frá Íslandi var einfaldlega betra. Með þessu tilboði fáum við svo til okkar danskar hjúkkur sem ekki þekkja spítalann, lyfin sem á honum eru notuð og kunna ekki íslensku

Allt þetta svo að ekki þurfi að gera betur að íslensku heilbrigðisstarfsfólki. Eða á þetta kannski að gefa fólki færi á að rifja upp skóladönskuna?

Saturday, May 20, 2006

LOL

Friday, May 19, 2006

Fyrstur með fréttirnar

Eins og venjulega er Jósef K. með nefið þar sem hann ætti ekki að hafa það. Að þessu sinni hefur hann komist á snoðir um fréttaflutning sem almenningur á ekki að njóta fyrr en á morgun. Þar sem flestir eiga sennilega ekki eftir að sjá þetta fyrr en á morgun skiptir þessi tímasetning litlu sem engu máli.
Engu að síður sendi Jósef ljósmyndara í dulargervi inn í prentsmiðju fréttablaðsins og náði hann skotum af forsíðu morgundagsins. Forsíðufréttin gæti verið upphaf af nýrri stefnu í utanríkismálum og sumir segja að efni fréttarinnar sé aðdragandi að endurreisn Berlínarmúrsins.



Að ofan sést forsíðan og á henni er því lýst hvernig hagsmunahópar hafa safnast saman og skorað á Jón Baldvin Hannibalsson að hann dragi stuðning við sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna tilbaka. Dagur Brandsson formaður hagsmunasamtakanna Endurheimtum Evróvísjón (EhE), einnig þekktur sem DJ Daggi, segir V-Evrópskar þjóðir hafa fengið sig fullsaddar keppninni eins og hún er í dag. Undankeppnin hafi bara verið svindl og allar A-Evrópuþjóðirnar hafi komist áfram með rússneskri kosningu. Vegna þessara leiðinda undanfarin ár hafa samtökin leitað eftir aðgerðum stjórnvalda, eða fyrrum stjórnvalda. Dagur segir Jón Baldvin og aðra frjálslynda stjórnmálamenn þurfa að leiðrétta þau mistök sem þau gerðu með þætti sínum í að binda enda á kalda stríðið. Nú sé kominn tími leiðréttinga. Þá bendir hann á að þetta gæti styrkt samband Íslands við Rússa sem búa yfir miklu eldsneyti í miðri olíukreppu.

Búast má við að EhE séu þau fyrstu af mörgum samtökum sem eiga eftir að ráðast á Jón Baldvin með sambærilegar kröfur og því er talið víst að hann muni innlima Eystrasaltsríkin í Rússland von bráðar.

Gagnrýnisraddir hafa þó heyrst víða. Meðal annars hafa sumir bent á að þó að Íslendingum þyki mörgum austur evrópskt popp vera tilkomulítið, þá þýði það ekki að smekkur A-Evrópubúa sé verri. Hann er einfaldlega annar.

Annar hópur kom því kröftuglega á framfæri að honum hefði sko aldrei líkað við Silvíu Nótt og að framlag hennar hefði verið skammarlegt. Þessi hópur hefur einkum birt skoðanir sínar á barnalandi og þá 2-5 mín. eftir að í ljós kom að lagið komst ekki áfram í keppninni. Athugull maður spurði hvers vegna þessar skoðanir komu ekki fram áður en úrslit voru tilkynnt?

Thursday, May 18, 2006

Íslendingar: minnstir manna

Það er svo langt frá því að það sé áhugavert að hlusta íslenska fjölmiðla ræða um evróvísjón. Fjölmiðlafólkið er svo vandræðalegt og kjánalegt í umfjöllun sinni. Enginn er tilbúinn að vera með í leiknum. Allir þurfa að láta vita að þeir skilji brandarann. Sjálfum finnst mér það sjálfsagt af fjölmiðlum að halda sé í karakter eins og Sylvía hefur gert. Það vita allir að þetta er brandari, en brandarinn er einmitt sá að Sylvía gerir allt eins og um alvöru sé að ræða. Hvers vegna geta fjölmiðlar þá ekki staðist það að minna á að þetta sé nú leikrit hvað eftir annað?

Jú, eins og svo margir aðrir Íslendingar eru fjölmiðlar pínulitlir kallar og konur. Þetta pínulitla fólk er mjög upptekið af því að vera íslenskt og það hefur tileinkað sér smáborgaralega þjóðerniskennd. Þessi kennd kemur m.a. fram í því að fólk skammast sín fyrir aðra Íslendinga, jafnvel þó að þeir hafi aldrei hitt þá.

Fremst í flokki pínusmáfóksins eru þau Hallgrímur Thorsteinsson og Lóa Aldísardóttir. Þau hafa sýnt Sylvíu og evróvísjón gríðarmikla athygli undanfarið. Í þeirri umræða hafa þau dásamað Ágústu Evu fyrir að halda sér í karakter og raunar talað eins og þetta sé allt saman dásamlegt. Á nokkurra mínútna fresti telja þau sig þó þurfa að koma því að að þau viti að þetta sé leikur.

,,Allt í lagi Hallgrímur og Lóa, við vitum að þið eruð ekki vitlaus. Við vitum að þið skiljið þennan ungæðislega gamanleik og eruð almennt hipp og kúl með æpodd!!"

Ekki nóg með að þau telji sig þurfa að afheimska sig reglulega til að gera sig ekki að fífli. Þau hafa einnig lýst áhyggjum sínum á því að fólk fatti ekki djókið. Þetta hafa margir aðrir Íslendingar gert.

Þetta er allt saman fólk sem er svo pínuagnarsmátt að því finnst sem því, og hinni íslensku smáborgarasamsál, sé ógnað af þessari ,,vitleysu." Enginn ætti að skammast sín fyrir það sem hann hefur ekki áhrif á, og allra síst fyrir einhvern sem hefur engin bein tengsl við viðkomandi. Agnarsmáa fólkið skilur ekki að 19 ára dekurdós getur ekki gert það að fíflum... eða hvað?
Svona gæti stigavörður Íslands litið út á laugardaginn
Jú auðvitað hafa þessi agnarpínusmáu viðbrögð fólks sýnt hvurslags fífl fólkið er.

Nú verðum við bara að gefa Sylvíu svigrúm til að gera agnarpínulitla Evrópubúa að fíflum.