Wednesday, June 29, 2005

Sumarið er komið...

Já, það er satt. Sumarið er komið og eins og svo oft áður er það fullt af leiðinda málum á borð við það sem hefur komið upp hjá Bubba Morthens og fleirum. Gúrkutíðin getur farið mjög illa með fólk.

Í dag vill þó svo til að alvöru frétt er í loftinu. Vinstri grænir hafa ákveðið að vera með prófkjör fyrir næstu kosningar. Prófkjörið er þó ekki hefðbundið enda ætlar flokkurinn að vera með fléttulista þrátt fyrir prófkjörið. Á mbl.is er prófkjörið reyndar kallað forval, en það er sem sagt sams konar og þegar talað er um lokað prófkjör, aðeins félagsmenn fá að taka þátt.

Það sem Jósef, og reyndar mörgum öðrum, finnst undarlegt er að halda skuli bindandi prófkjör þegar ekki verður farið eftir þeirri kosningu. Ef við giskum á að 20 sæti verði í boði þá gætu konur unnið þau öll en samt væru tíu karlmenn á listanum. Af hverju hafa þessir karlmenn rétt að sitja í borgarstjórn án atkvæða? Jú, lýðræði og jafnrétti auðvitað. Þessi tvö hugtök eru þeim efst í huga sem ákveða þessa aðferð og framfylgja fyrir næstu kosningar. Það er þó undarlegt að tala um lýðræði, þegar val ræðst ekki endilega af flestum atkvæðum og jafnrétti þegar einmitt er verið að leggja hömlur á fólk eftir kynferði.

Flokkurinn (Vg) hefur þegar tryggt jafnrétti með því að leyfa hverjum sem er að bjóða sig fram. Þannig er flokkurinn farinn að breyta gegn þessum tveimur lykil-hugtökum.

Þessi tegund flokkunar gerir auðvitað stöðu einhverra ansi auma og verðlausa. Sá maður sem kemst inn á þriðjungi atkvæða konunnar sem er í sætinu á eftir er ekki í eftirsóknarverðri stöðu. Hann hefur komist ofar á lista einungis vegna þess að hann er með typpi og af því að reglurnar eru kjánalegar.

Til að gera dæmið á undan raunsærra verður auðvitað að víxla orðunum maður og kona og svo skipta út orðinu typpi fyrir píka. Það breytir því þó ekki að sanngirnin er sú sama, hvort sem það er maður eða kona sem kemst inn gegn vilja fjöldans. Í leiðinni er staða veikara kynsins (hvort sem það verða karlar eða konur) á listanum orðin veikari vegna þess að fulltrúar þess hafa ekki jafn mörg atkvæði á bakvið sig og komust augljóslega inn vegna kynferðis.

Það sem ég myndi vilja hvetja konur innan stjórnmálaflokka til að gera er að vinna saman að kynningarstarfsemi. Hækka þannig raust sína og segja okkur hvers vegna það borgar sig að kjósa konur, ekki hvers vegna borgar sig að láta velja konur fyrir sig. Það segir sig sjálft að hópur sem ekki er sá vinsælasti í samfélaginu þarf að vinna meira og betur að því að kynna sig fyrir kjósendum. Jöfnuður á að gerast að sjálfu sér út frá réttlátri stjórnarskrá þar sem réttindi allra er metin þau sömu. Ef við ætlum að breyta vígvellinum svo að minnihlutahópar geti komið sér á framfæri ættum við kannski líka að breyta úthlutunarreglum ríkisins til stjórnmálaflokka þannig að sá flokkur sem fær verstu kosninguna fá lang mest fyrir næstu kosningar, til að jafna vígvöllinn. Eða banna sjálfstæðismönnum og samfylkingunni að auglýsa fyrir næstu kosningar?

Nú er það þannig að ég tel konur eiga nákvæmlega sama erindi við stjórnmál og karlar. Ég treysti þeim fullkomlega til að reka þessi erindi, hafi þær áhuga á að berjast fyrir þeim með lýðræðislegum hætti. Ég eignaðist nýlega dóttur og ég vona að hennar starf verði aldrei talið minna virði, einfaldlega af því að hún er kona.

Friday, June 24, 2005

Báðir skríbentar síðunnar hafa verið í fæðingarleyfi. Afraksturinn má sjá hérna

Nú geta lesendur bara deilt um hvorum hún sé líkari, Jósef eða Árna Gunnari.

Annars er von á eldheitum pistlum á næstunni...