Óásættanleg vinnubrögð Sjálfstæðisflokksins
Nú hafa flestir tekið eftir því að stjórnmálaflokkar eru að heyja harða kosningabaráttu þessa dagana, enda kosningar á morgun, og eru menn orðnir mispirraðir á öllum auglýsingunum. Þegar kosningabarátta er sett í gang þarf að gæta að siðferði fyrst og fremst, því ef það glatast verður ekkert nema anarkismi og barbarismi ríkjandi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki haft siðferðið í fyrirrúmi í hluta baráttunnar og er það hvatin að þessum skrifum.
Akureysk ungmenni hafa orðið vör við sms-skilboð síðustu daga þar sem í standa stutt slagorð frá ungum sjálfstæðismönnum, auk þess sem nafn samtakan kemur fram. Þessi skilaboð eru send í gegnum tölvukerfi þar sem notaðir eru svo kallaðir spam-listar, en það eru listar yfir fjölda símanúmera sem hægt er að nota til að senda mörgum einstaklingum í einu, þ.e.a.s. til allra númera á listanum. Síðast þegar ég vissi eru þessir listar ólöglegir, nema viðkomandi hafi samþykkt að vera þeim. Ungir Sjálfstæðismenn hafa þó reynt að breiða yfir þetta með því að skrifa símanúmer Arnljóts Bjarka í stað nafns sms-þjónustunnar. Þetta eru þó mjög augljós svik þar sem alltaf kemur fram landsnúmer þegar send eru sms en þau koma ekki fram á umræddum skilaboðum.
Sms-spamið er þó ekki eina skítabragð Sjálfstæðismann í NA-kjördæminu. Fyrir skömmu var borið út á hvert heimili kjördæmisins ritið Íslendingur. Það er málgagn flokksins og er á öftustu innsíðu þess listi með yfirskriftinni:,,Við styðjum Halldór Blöndal til forystu í kjördæminu." Ekki er mikið athugavert við að menn monti sig af stuðningi en það sem er verri er að nöfn þeirra sem á þessum lista eru ekki endilega nöfn stuðningsmanna Halldórs. Ég veit það fyrir víst að a.m.k. einn einstaklingur á listanum þurfti ekki að lýsa yfir stuðningi til að vera settur þarna inn. Þetta er vegna þess að ,,mikilsmetnir" stjórnarmenn fjöldasamtaka hafa tekið sér bessaleyfi og einfaldlega skráð einstaklinga samtakanna inn á listann án þess að spyrja kóng eða prest, og ekki einu sinni viðkomandi einstaklinga. Þetta hlýtur að teljast langt utan siðferðis og er flokknum svo sannarlega til smánunar.
Hvernig er hægt að taka menn alvarlega þegar þeir koma sér áfram á svikum og skítugum kosningabrögðum, eða eru þetta vinnubrögðin sem við viljum á Alþingi?