Fasistaríkið Ísland
Hvað vakir fyrir frelsiselskandi ríkisstjórn Íslands er hún kýs að fremja pólitískan hórdóm, frelsissviftingar, og mannréttindabrot? Það að þrír af helstu ráðherrum Íslands skuli sameinast í þessari afstöðu til friðsamlegs fólks sem vill fá tækifæri til að mótmæla því sem Íslendingar þykjast vilja berjast gegn, einræði, kommúnisma, mannréttindabrotum og aftökum án dóms og laga, er til skammar, ekki aðeins fyrir þessa þrjá aðila, heldur þjóðina í heild.
Í kastljósþætti kvöldsins viðurkenndu þessir þrír ráðherrar sekt sína með fjarveru sinni enda ýjaði Kristján að því að þeir hefðu einfaldlega ekki viljað koma.
Einhverjir kunna að segja að þetta séu eðlileg viðbrögð vegna þess hve lítið lögreglulið Íslendinga er en það er svo sannarlega ekki afsökun. Í fyrsta lagi segir skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytis að eingungis séu um 300 lögreglumenn tiltækir á höfuðborgarsvæðinu. Lítum þá á málið. 400 meðlimir Falon Gong samtakana voru taldir vera á leið til Íslands. Eru 300 lögregluþjónar ekki nóg til að verja boðbera spillingar, mannréttindabrota og kúgunar? Þar við bætast vopnaðir lífverðir forsetans sjálfs. Ef þetta er ekki nóg til að hemja friðsamleg mótmæli þá held ég að Íslendingar ættu að fara að endurnýja löggæslusveitir sínar. Þessi vinnubrögð verða ekki liðin meðal þjóðar vorrar, þjóðar sem státar, og jafnvel monntar sig af því að hafa verið fyrst ríkja heimsins til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.
Þessi hentistefna ráðherranna er skref í átt til glötunnar sjálfstæðrar hugsunnar. Hvað hefði gerst ef að Fidel Castro myndi myrða alla íbúa af Ítölskum ættum á Kúbu? Myndum við bjóða honum í heimsókn og verja hann með öllum tiltækum ráðum og jafnvel fórna mannréttindum og öðrum gildum sem við lítum á sem sjálfsagða hluti hér á Íslandi? Nei, svarið er einfalt, nei, það myndum við að sjálfsögðu ekki gera enda væri það ekki þess virði að glata sjálfsvirðingu þjóðarinnar fyrir svo lítil viðskipti. Hinsvegar, þegar stórveldi eins og Kína er annars vegar, þá erum við tilbúin að gefa skít í allt sem lýðræðið og Biblían hefur kennt okkur jafnvel þó að við vitum að það sem við verslum þaðan er að miklu leyti varningur sem unninn er við barnaþrælkun og annars konar kúgun. Þetta eru þessir þrír ráðherrar að gefa skít allt vegna þess að þetta getur halft áhrif á viðskiptahallann. Davíð, Sólveig og Halldór, þessi nöfn munu í frá deginum í dag ekki hljóma sem pólitískir andstæðingar heldur sem afl hins illa og því sem er virkilega að heiminum í dag.
Hórdómur, að selja sig og glata allri sjálfsvirðingu auk áunnar virðingar hluta þjóðarinnar. Þetta verður líklega komið í Íslenska samheitaorðabók undir lok ársins.
Ísland er í dag að komast á pall með fastist ríkjum heimsins þar sem valdir eru menn í hverja stöðu, meira að segja í stöðu mótmælanda. Dómsmálaráðuneytið segir að þeir vilji ekki hefta rétt fólks til friðsamlegra mótmæla, heldur einungis takmarka fjölda mótmælenda, glórulaust.
Í dag var maður handtekinn er hann lenti á keflavíkurflugvelli og hann sviptur rétti sínum til að ganga á götum Reykjavíkurborgar vegna þess að hann var meðlimur í Falon Gong-samtökunum. Sagt var við hann að hann hefði verið handtekinn og skildi vera færður í varðhald í Njarðvíkurskóla. Þegar þangað var komið var honum tjáð að hann væri ekki handtekinn, hann væri bara ekki frjáls ferða sinna. Fasismi og aftur fasismi.
Íslenska þjóðin situr eftir með sjokkerað andlit og kínverskan reður í afturendanum. Við erum höfð að fíflum af okkar eigin ríkisstjórn og í fyrsta skipti get ég sagt og staðið við það að ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur.