Af heigulshætti
Hvernig fannst þér þegar þú varðst 16 ára og útivistarreglur voru ekki lengur í gildi? Fannst þér þú tilneyddur til að vera lengur úti, jafnvel þó að þú hefðir engan áhuga á því? Stóðstu skíthræddur á Hlemmi og beiðst eftir því að klukkan væri orðin a.m.k. eitt áður en þú fórst kaldur og hrakinn heim til þín?
Mér fannst fínt að verða 16 ára. Ég er ekki viss um að ég hafi verið mikið lengur úti á kvöldin, en ég mátti það. Það var þægilegt að mega ráða sér sjálfur og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að löggan skutlaði manni heim.
Sömuleiðis held ég að þessi auma kirkja, sem enn er ranglega kennd við íslensku þjóðina, ætti að fagna því að fá aukið sjálfræði, frelsi jafnvel, ef við klæmumst að hætti sjálfstæðismanna. Hvernig stendur á því að kirkjan er svo aum að hún þolir það ekki að fá leyfi til einhvers? Hvernig væri að gefa prestum leyfi til særinga? Yrðu þeir vitlausir yfir því leyfi? Leyfi til særinga þarf engin áhrif að hafa á presta. Þeir geta einfaldlega sleppt því að særa og haldið áfram að predika.
Vegna þess hve kirkjan er aum þarf að banna öðrum kirkjum að gefa saman samkynhneigða. Vegna þess að dekurbarnið grenjar á að setja allt slíkt á ís. ,,Bíðum eftir kirkjunni” segir Halldór Ásgrímsson. Ef kirkjan þarf að hugsa sig um getur hún bara gert það á meðan önnur trúfélög gera það sem þau vilja. Ef kirkjan þolir ekki að þurfa að taka slíka ákvörðun án þess að missa annað hvort trúna eða safnaðarbörnin ætti hún ekki að vera til.
