Tuesday, March 25, 2003

Tilveran, leið SUS í baráttunni um atkvæði sauðsvarts almúga

Nú hefur nær einungis verið fjallað um stríðsrekstur hér á síðunni síðustu daga og jafnvel vikur. Ekki veitir af því að nú fari innanlandspólitík að koma fram í dagsljósið þó að erfitt sé að einbeita sér að henni þegar maður liggur yfir BBC á nóttinni og horfir á borgir brenna.

Hún er þó ekki af merkilegri toganum sú pólitík sem fer hér á eftir. Þannig er mál með vexti að Tilveran hefur lengi verið eitt vinsælasta vefsetur Íslendinga, ekki síst vegna klámsins og djammmyndanna sem þar koma fyrir. Eins og allir vita eru bæði þessi hugtök viðbjóður, hin argasta lágmenning og gríðarlega vinsæl meðal þjóðarinnar.

Nú fyrir skömmu tóku tilverukallar upp á því að auka á fjölbreytnina og setja inn flokkinn ,,pólitík" við misjafna lukku aðdáenda. Einhverjir kvörtuðu yfir því að pólitík væri leiðinleg en aðrir yfir því hve hægri sinnuð tilveran væri. Tilverumenn báru því við að hægrimenn væru einfaldlega duglegri við að senda inn hlekki á pistla sem þeim væru þóknanlegir. Ekki kaupa nú allir þessa skýringu, þrátt fyrir að tilveran hafi verið í varnarstöðu í s.a. þrjá daga eftir ásakanir kommúnista. Þeir birtu nokkra pistla af múrnum, kreml og pólitík.is en þó var tilveran ekki lengi að taka aftur á sig sína réttu mynd. Í dag hafa komið tveir einstakir hlekkir máli mínu til sönnunar. Annar skýrir frá því hve Össur Skarphéðinsson sé ósamkvæmur sjálfum sér.

Hlekkur Össurar

Þrátt fyrir að hér eigi ,,spontanræðumaðurinn" Össur Skarphéðinsson í hlut, þá er ekki erfitt að verja þessar tvær fyrirsagnir. Þenslan í dag er einfaldlega langt frá því að vera sú sama og 1999. Því hlýtur að vera eðlilegt að skoðanir Össurar á skattmálum séu breyttar við breyttar aðstæður. Hvað varðar skattalækkanir Sjálfstæðisflokks þá er það, eins og svo margt annað, eitthvað sem fræðimenn geta deilt endalaust um og treysti ég mér því ekki til að fullyrða í þeim málum.

Seinni hlekkurinn sýnir tillögu frá manneldisráði sem lögð var fyrir heilbrigðisnefnd alþingis.

Hlekkur manneldisráðs

Hlekkurinn er titlaður hjá þeim tilverumönnum með eftirfarandi setningu:,,Við höfum ákveðið fyrir þig, að það sé óhollt að drekka gos ( -erum við ekki sniðug! )." Þessi setning er einkar SUS-araleg. Það er þeim líkt að fara að setja upp áhyggjur manneldisráðs, og tilraunir til að breyta þeim vandamálum, sem einhverja haftastefnu stjórnvalda. Er samfélagið virkilega þannig að ekki megi á neinn hátt reyna að breyta ósóma samfélagsins. Á að leggja niður manneldisráð, kvikmyndaefttirlitið, tollgæsluna og fleiri stofnanir svo að stjórnvöld séu ekki að hefta okkur á leið okkar til helvítis? Þetta minnir óneitanlega á það þegar Andrés Magnússon, blaðamaður, vildi leggja niður kvikmyndaeftirlitið með þau rök á borðum að hann gæti vel passað upp á hvað börnin hans myndu horfa. Ég er allavega alveg tilbúinn að sjá höft sett á saurlífisseggi eins og sjálfan mig, börn sem eru svo bersýnilega að fitna langt fram úr hófi og þrítugar konur sem eru komnar vel á leið með beinþynningu. Þessar aðgerðir ættu að geta dregið úr gosdrykkju ásamt því að spara heilbrigðiskerfinu nokkrar miljónir til langs tíma.

arnigunn.tk segir frjálslyndi og lýðræði ekki efnishyggju og anarkisma.

Monday, March 24, 2003

Nákvæmnisstríð!

Eitthvað gott að frétta? Ekki héðan allavega. Bandaríkjamenn og Bretar hafa lofað lágmarks mannfalli vegna tæknilegu vopnanna sinna. Þessi vopn eru þó ekki tæknilegri en svo að sprengjurnar eru farnar að falla á vægast sagt vafasömum stöðum. Það hlýtur t.d. að teljast óvenjulegt að sprengja Íran. Einnig er það ekki normal að sprengja Jórdanska rútu og það er alls ekki eðlilegt að sprengja breskar flugvélar eða klessa saman tveimur þyrlum.

Þessi fullkomna vopnatækni virðist þó ekki síst vera að koma niður á bandamönnum sjálfum, þó að þegar saman verður talið hafi óbreyttir borgarar væntanlega komið verst út. Þarna sjáum við eitt dæmi þeirrar gríðarlegu hræsni sem einkennir þetta stríð.

Miklu fullkomnari vopn. Algjört lágmarks mannfall. Íraska þjóðin er ekki óvinur okkar. Gereyðingarvopn eru smíðuð af myrkrahöfðingjanum, hver smíðaði napalm-sprengjurnar? Við ætlumst til þess að föngum verði þyrmt, á meðan við nauðgum, berjum og niðurlægjum fangana í Gunatanamo.
Hræsnin er yfirgengileg og reyndar ofar mínum skilningi. Það er ekki hægt að hafa tölu á þessu lengur.


ÁGÁ
Bandaríkjaher farinn að beita Napalm-sprengjuárásum

Jæja, þá er her bandamann aldeilis farinn að sýna sitt rétta andlit. Þeir eru farnir að beita napalm sprengjum sem eru þeim hæfileikum gæddar að geta eytt heilum svæðum. Sprengjurnar innihalda mjög eldfimt bensín, napalm, sem veldur algerri eyðileggingu á því svæði sem þær eru notaðar á. Napalm var mikið notað til að eyða Víetnamska regnskóginum, eins og fólk þekkir úr myndum um það stríð, og gekk það einstaklega vel. Stór kassalaga svæði voru sprengd og þannig myrtu bandaríkjamenn allt kvikt á þeim. Þetta þykja varla annað en einstaklega heigullegar aðferðir og vekja upp spurningar um fullyrðingar Bush. Hann hefur fullyrt að þetta stríð sé ekki háð gegn Írak, heldur stjórnar Saddams Hussein. Hvernig er klekkt á Saddam með því að eyða heilum svæðum með bensíni? Ég skil það ekki og líklega fæstir. Lágmarksmannfall virðist ekki vera annað en orð í augum Bush-stjórnarinnar.

PAX Romana

ÁGÁ

Sunday, March 23, 2003

arnigunn.tk varar við nýju hippatímabili

Vegna stríðsins í Írak og eigin reynslu af tilfinningum til þess var ég hér með við öðru hippatímabili. Ég ræð ekki við þetta sjálfur og er farinn að birta gamla Víetnam-mótmælatexta á síðuna og sauma mér rosalega útvíðar buxur. Þess vegna ber að vara alla við sem eru á sömu leið.

Ekki neyta ofskynjunarlyfja, LSD, PCP og annarra skyldra.

Ekki nota kannabisefni oftar en tvisvar í viku.

Ekki fara á Karólínu oftar en fimm sinnum í viku.

Passa skal að föt séu ekki víðari en svo að þau rekist í næsta mann.

Hlustið ekki á Sigur rós lengur en 45 mín í einu, þá skal taka 15 mínútna pásu.

Hlustið alls ekki á Godspeed you Black Emperor.

Varist að fara í plötusafnið hjá pabba og mömmu.

Lesið ekki um stúdentaóeirðirnar í París 1968, Gúttóslaginn, mótmælin á torgi hins himneska friðar.

Hvílið Kommúnistaávarpið og önnur Marxísk rit.

Ekki vaka á nóttinni til að sjá sprengjurnar falla.

Horfið ekki á heimildarmyndir frá Víetnamstríðinu eða um afleiðingar fyrra Persaflóastríðs.

Kaupið föt í Style konur, ef það er ekki farið á hausinn, og Toppmenn og Sport.

Talið ekki við annað fólk nema um nám eða veruleikaþætti.

Ef öllu ofantöldu er sleppt ættum við að komast klakklaust frá þessu. Ef ekki, eins og ég virðist vera að gera, þá skulum við bara syngja söngva og bíða eftir auknu lýðræði og því að fitulag heilans verði aftur samt.


ÁGÁ

Genf, viðkomustaður Saddam á leið sinni til Haag

Írakar hafa nú barist hetjulega gegn bandamönnum, í dag og gær a.m.k. Þetta segi ég ekki vegna þess að mér finnist æðislega fínt að Bandaríkjamenn og Bretar séu skotnir eða pyntaðir í íröskum fangelsum, heldur vegna þess að málstaður þeirra hlýtur að virðast að mörgu leiti slappur. Þeir eru jú að berjast fyrir land sem hefur að flestu leiti reynst þeim illa, eða okkur er allavega talin trú um það. Því hlýtur að teljast nánast hetjulegt að berjast af krafti fyrir veldi mannsins sem drap frænda þeirra, nauðgaði konunum þeirra og svelti börnin. Nú er oft talað um að Írakar séu vel menntuð þjóð og t.d. er Írak merkilegt múslimaríki að því leiti að þar er konum leyft að mennta sig. Það telst þó varla öruggt að þetta sé hetjuskapur hjá þeim sem ég hef verið að mæra hér að ofan. Kannski er skárra að falla í valinn en að falla í Írösku fangelsi. Kannski er það hræðsla sem fær mennina til að berjast og gerir þá tilbúna til að fórna lífi sínu, frekar en að verða pyntaðir og vita svo að því að fjölskyldur þeirra verða gerðar útlægar.

Samkvæmt mínum heimildum er Saddam allavega farinn að gera vel að stríðsföngum sínum. Hann er nú þegar farinn að reyna að nota þá sér til hagsbóta. Hann lætur fréttamenn taka við þá viðtöl og sendir út í sjónvarpinu. Í fyrra stríði gerði hann þetta á þann hátt að hann lét pynta fangana og svo komu þeir fram, nýbarða og fína, segjandi heimsbyggðinni að stríð gegn Írak væri ekki réttlætanlegt.

Þessi vinnubrögð eru víst brot á Genfarsáttmálanum og hefur Saddam því tryggt sér farmiða til Haag ef hann næst lifandi, sem ég tel reyndar ekki vera ósk Bush eða annarra.

Í tilefni þess að stríðið ætlar að verða lengra, verra og leiðinlegra en búist var við í fyrstu þá hef ég ákveðið að birta annan væminn og skemmtilegan texta hér að neðan:

I'd like to build the world a home
And furnish it with love
Grow apple trees and honey bees and snow-white turtle doves

I'd like to teach the world to sing
In perfect harmony
I'd like to hold it in my arms and keep it company

I'd like to see the world for once
All standing hand in hand
And hear them echo through the hills Oh, peace throughout the land


ÁGÁ
Ég er ekkert fyrir það að skrifa blogg sem blogg, en allavega var fyrra blogg mitt í dag greinilega ekki við hæfi. Þeir sem sáu það ættu að gleyma því, enda virðast vinsældir mínar í bloggheiminum hafa slæmar afleiðingar. Því dreg ég allt til baka og gef eftirfarandi skýringu.

Thursday, March 20, 2003

Hégómi Bush Bandaríkjaforseta

Jæja, þá er stríðið hafið og flest eða allt slæmt um það að segja. Þar sem allir eru að hlusta á fréttir allan sólarhringinn þá ætla ég ekki að vera að bæta í þann pott, enda barmafullur.

Ræða Bush í nótt vakti mikla athygli. Þar kom ýmislegt merkilegt fram, m.a. að nú dygði ekkert annað en sigur o.fl. skemmtilegt. Það sem ég ætla að skjóta hér inn varðandi þessa ræðu er stutt því að ekki er tíminn mikill enda svakalegur pólitískur fundur í VMA eftir augnablik. En aftur að ræðunni. Henni var sjónvarpað til Írak og Bush kann greinilega allar hallærisleiðirnar til að ná ,,heimskum almúga" á sitt band.

Þegar Bush hélt ræðu sína var hann, eins og svo oft áður, með grátstafinn í kverkunum og þennan venjulega væmnis svip. Meiri athygli vöktu þó myndirnar á borði hans. Þegar venjulegur fjölskyldufaðir setur myndir á skrifborðið sitt til að minna á yndisleika familíunar þá snýra hann þeim venjulega að vinnuaðstöðu sinni. Það er eðlilegt. Bush vildi hins vegar sýna írösku-þjóðinni að hann væri ,,venjulegur" fjölskyldufaðir og snéri myndunum út, eða í átt að myndavélunum. Eins og segir á máli tölvunar: lol.

Æðislegt trix, hjá frábærum gaur.

Tuesday, March 18, 2003

Ræða Bush

Í fyrir u.þ.b. tíu mínútum, þegar þetta er ritað, hélt Bush ræðu sína sem beðið bar eftir með mikilli eftirvæntingu. Margir hafa talið að nú myndi hann lýsa yfir stríði og er það ekki fjarri lagi. Sem einn helsti fjölmiðill landsins höfum við á arnigunn.tk ákveðið að taka þessa ræðu fyrir en efnisatriði höfum við stolið beint úr punktum þeim er fréttir RÚV birtu um og eftir ræðuna. Það einfaldar málið og kemur í veg fyrir slappar þýðingar og annan viðbjóð.

Írak hefur sýnt andúð á Bandaríkjunum

Þetta atriði á sér mjög eðlilegar orsakir. Bandaríkjamenn hafa haldið viðskiptahömlunum yfir Írak síðan frá fyrra Persaflóastríði. Þetta hefur leitt af sér hungurmorð og vanþróun sem skilar sér eðlilega sem illska til óuppfrædds lýðs. Saddam Hussein hatar Bandaríkin vegna þess að þeir standa í vegi fyrir geðveikislegum markmiðum hans. Því held ég að Bush ætti að sýna þessu skilning. Það hafa allir sýnar ástæður, bara misgóðar.

Öryggisráðið hefur ekki sýnt staðfestu

Þetta er vissulega satt að mörgu leiti því að sum ríki öryggisráðsins hafa vissulega ekki sýnt staðfestu. Bush á hins vegar væntanlega við það hvernig einkum Frakkar og Þjóðverjar hafa tekið á þessum málum. Ég get ekki betur séð en að þeir hafa sýnt ágætis staðfestu og fylgt sinni skoðun eftir. Ef öryggisráðið sýnir ekki staðfestu með því að þar ríki lýðræði þá er ég ekki viss með merkingu þess orðs.

Saddam fær 48 stunda frest

Það er svo sem ekki mikið um þetta að segja. Það væri jú fínt ef hann léti sig hverfa enda ekkert sérstaklega fínn kall. Ef tekst að hræða hann frá völdum, sem telst í besta falli ólíklegt, þá batnar ástandið í Írak eflaust umtalsvert. Það að Saddam láti sig hverfa er samt sem áður alls ekki trygging á því að hann láti ekki til sín taka. Einnig gætu hryðjuverkasamtök refsað fyrir þetta eins og hryðjuverkasamtök. Þó ber að varast að vera að tengja Saddam við slíkar stofnanir enda ekki verið sannað á hann tengsl við slík.

Frelsun Íraks á næsta leiti

Frelsun Íraks er að sjálfsögðu frábær kostur. En er öruggt að Bush frelsi þá í raun. Hann hefur nú þegar gefið það út að hann ætli að skipta sér að stjórnarmyndun og hefur þegar myndað bráðabirgðastjórn í huganum þar sem Bandaríkjamaður á að hafa hönd í bagga.

Öryggisgæsla í Bandaríkjunum verður hert

Þó það nú væri. Það hlýtur að teljast líklegt að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða ef til árásar kemur. Ég er feginn að búa ekki í Reykjavík eftir yfirlýsingu Dabba og Dóra og ráðlegg öllum að halda sig sem mest inni fyrstu dagana eftir að árásir hefjast. Það ber að varast að fara í Kringluna, Smáralindin og á fjölmenna staði.

Frelsa þarf Írak svo að friður náist

Bíddu, er ekki þokkalegur friður núna? Ég hef allavega ekki orðið var við stríð, nema það sem ég lýsti sjálfur yfir í morgun. Ekki getur orðið friður nema fyrst komi stríð og því má telja öruggt að Bush sé að fara að bomba.

Af ræðunni í heild er það að segja að hún var alls ekki svo slæm. Ég hélt satt að segja að Bush yrði harðari og með meiri morðglampa í augunum. Margt af því sem hann sagði er gott og gillt en annað alveg út úr korti eins og sjá má að ofan.

Ég get ekki annað en beðið og vonað að Saddam láti sig hverfa en veit þó að það er einfeldningslegt. Einnig óska ég þess að Írakar nái að halda sem best í sitt fullveldi, enda um auðuga þjóð að ræða ef rétt er haldið á spilum.

Þykir mér rétt að enda þennan pistil um stríð og einfeldningslegar vonir á einfeldningslegum texta eftir John Lennon. Heitir sá Imagine og þrátt fyrir einfaldleikan þá minnir hann mann gjarnan á það um hvað lífið snýst. Njótið vel.


Imagine

Imagine there's no heaven,
It's easy if you try,
No hell below us,
Above us only sky,
Imagine all the people
living for today...

Imagine there's no countries,
It isnt hard to do,
Nothing to kill or die for,
No religion too,
Imagine all the people
living life in peace...

Imagine no possesions,
I wonder if you can,
No need for greed or hunger,
A brotherhood of man,
Imagine all the people
Sharing all the world...

You may say Im a dreamer,
but Im not the only one,
I hope some day you'll join us,
And the world will live as one.

John Lennon


ÁGÁ

Monday, March 17, 2003

Stríð hafið!

Já, það er satt, stríðið er hafið. Nú er ekki svo að arnigunn.tk sé fyrstur með fréttirnar og sé á undan helstu fréttastofum heimsins með stríðsæsingarfréttir frá Írak. Stríðið sem hér um ræðir er í Palestínu.

Undanfarnar tvær vikur hefur Ísraelsher gengið langt í að notfæra sér stríðsæsingar í Írak til illverka sinna. Það hlýtur að vera mjög freistandi, ef maður hefur í hyggju að útrýma þjóð, að reyna að framkvæma mestan hluta verksins á meðan fólk hefur ekki áhuga á fréttum annars staðar að en frá Írak.

Meðal hryðjuverkamann sem Ísraelar hafa myrt síðustu daga, má nefna 2 ára stúlkubarn og 13 ára dreng. Í bæði skiptin var ætlunin, að sögn talsmanna hersins, að ráðast gegn hryðjuverkamönnum. Nú er tvennt sem kemur til greina. Herinn er farinn að skjóta á allt kvikt í þau skipti sem hann ræðst inn á land Palestínumanna eða það að hryðjuverkamenn eru farnir að nota smákrakka sem mannlega skyldi í hvert skipti sem þeir fara út úr húsi. Seinni möguleikinn hlýtur þó að teljast ólíklegur enda hefði herinn ísraelski verið búinn að nýta sér slíkt í fjölmiðlum.

Ég veit að alþjóðasamfélagið viðurkennir það ekki og ekki aðrir helstu fjölmiðlar heimsins en hér með ætlar arnigunn.tk að lýsa yfir stríði í Palestínu. Hryðjuverkamenn eru hér með orðnir hermenn, ekki af því að þeir séu góðir eða aðdáunarverðir og alls ekki af því að við styðjum þá, heldur af því að Ísraelsher er að gera það nákvæmlega sama og þeir. Herinn er að skjóta niður börn og unglinga í hrönnum með það að yfirskini að fyrir aftan börnin séu svakalegir hryðjuverkamenn.

Í dag hefur sú stefna verið tekin upp hér að þarna ríki stríð og að báðir aðilar hafi hermenn sem nota misjafna tækni við sama verknað. Að drepa.


ÁGÁ

Friday, March 07, 2003

Kastljósið með óhæfufólk í sjónvarpssal

Það vakti hug minn allan er ég horfði á kastljósið í kvöld og sá þar umræðu um lögleiðingu kannabis-efna. Þar kom fram ung stelpa að nafni Tinna ... og svo hjúkrunarfræðingurinn Þorgerður Ragnarsdóttir.
Ég ætla ekki að kvarta yfir umræðuefninu eða skoðunum viðmælenda heldur því að þessi hjúkrunarfræðingur virtist vera fátt annað en hálfviti.Þetta lýsti sér í því að þegar fyrrnefnd Tinna minntist á fólk sem þyrfti á kannabis að halda og taldi upp til dæmis fólk með lystarstol og krabbamein þá svaraði Þorgerður á þá leið að hún vissi til þess að einhverjir, t.d. sjúklingar með vissar tegundir krabbameins, nýttu kannabis sér til heilsubótar. Hún sagðist ekki viss hvernig það virkaði en að það slægi á verki sjúklinganna.
Að heyra þetta frá manneskju sem vinnur á heilbrigðissviði er sorglegt. Að heyra það frá manneskju sem er tilbúin að ræða þessi mál fyrir framan alþjóð er bara skandall.
Allir þeir sem hafa lesið sig til um áhirf kannabisefna vita það að þau hjálpa krabbameinssjúklingum fyrst og fremst á þann hátt að þau búa til matarlyst. Þegar fólk er á krabbameinslyfjum á það yfirleitt erfitt með að halda niðri fæðu og því er kannabis frábær lausn. Kannabis er ekki verkjalyf þeirra, enda þarf mun sterkari efni við slíkum verkjum.

Ég held að fólk ætti að hafa vit á því að koma ekki fram í sjónvarpi og ræða um mál sem það hefur ekki hundsvit á. Það er þeim, og hinu ágæta ríkissjónvarpi, til skammar.


ÁGÁ

Thursday, March 06, 2003

George W. Bush, snillingur á sviði utanríkismála?

Ég hef verið að spá undanfarið hvers vegna Bush stjórnin er ekki enn búin að ráðast inn í Írak. Þetta er ekki vegna þess að ég njóti þess að horfa á fréttaflutning frá heldur vegna þess hve ákveðin stjórnin gefur sig út fyrir að vera í fjölmiðlum. Þeir ætla inn. Það er ekki flóknara en það.

Ég hef ekki komist að neinni endanlegri niðurstöðu í spám mínum en langar þó að segja lesendum frá einni fjarstæðukenndri en alls ekki ómögulegri. Það er nefinlega hugsanlegt að Bush sé að fara rétt að. Að hann eigi eftir að tryggja frið með því að undirbúa stríð.,,Si vis pacem, para bellum." Það sem hann er að gera er það að hann segist tilbúinn að sniðganga öryggisráðið í baráttu sinni við harðstjóra, hryðjuverkamenn o.s.frv. Stjórnin virðist herðast í baráttunni og svo virðist sem hann sé að fá einhverju framgengt með þessum skrípalátum sínum. Írakar hafa verið samvinnuþýðir að einhverju leiti og einhver framför hefur orðið á vopnaeftirliti, þó lítil sé.

Nú er ég að segja það að ef eitthvað er til í því sem ég er að bulla, þá hefur Bush ákveðið þetta í upphafi. Mjög miklar upplýsingar um hugsanlegt stríð voru gefnar fjölmiðlum og það þarf enginn að segja mér að þetta hafi ekki hrætt Saddam örlítið. Ef eitthvað er til í þessu þá fagnar Bush eflaust andstöðu Evrópu-ríkja, því þar fær hann tækifæri til að sýna hvað honum er alvara. Þau koma svo með tillögur sem Bush er kannski tilbúinn að mæta á miðri leið, harkan hans og sanngirni Frakka. Byggt er upp hatur á frökkum sem sýnir enn og aftur hvað Kaninn er einbeittur í því að ryðja Saddam frá. Hörkutólið gæti orðið svo hart að meira að segja Saddam Hussein fer að hræðast og hrökklast í burtu.

Svona væri kannski hægt að vinna einhverja landvinninga og gæti verið geðveikisleg lausn Bush á ógninni sem stafar af hungurmorða þjóð með brjálæðing í æðstu stöðu.

Ég vil taka það fram að ég trúi ekki sjálfur á það kjaftæði sem kemur fram að ofan. Ég mun halda áfram að trúa á frið frekar en stríð og eftirlit frekar en árásir. Það er þó orðið ansi undarlegt að ekki sé enn búið að bomba Bagdhad, miðað við fullyrðingar Bush og Blair. Ætli alþjóðasamfélagið hafi virkilega eitthvað að segja?