Báknið byggt upp Það líður oft stuttur tími áður en maður fattar að maður hafi gert mistök. Ásláttravillur er t.d. villur sem maður tekur eftir og leiðréttir strax. Sumir sjá mistök sín og neita að leiðrétta þau, hafa jafnvel ekki vald til þess eða bara ekki minnsta áhuga. Geir Haarde er einn þeirra.
Síminn hefur verið seldur. Það ættu að vera góðar fréttir fyrir marga. Ég get þó ekki sagt að ég sé ýkja hrifinn. Síminn er seldur fyrir æðislega gott verð og grunnnetið með. Nú er þetta grunnnet notað til að senda út fótbolta og öðrum fyrirtækjum er neitað um bita af kökunni. Ekki nóg með það heldur ætlar síminn að narta af kökum annarra með því að bjóða enska boltann einungis í gegnum adsl þjónustu hjá sér.
Þetta væru í sjálfu sér bara venjulegir subbulegir viðskiptahættir ef ríkið hefði ekki skipulagt þetta allt saman. Það var jú stjórn símans í umboði fjármálaráðherra sem ákvað að kaupa skjá einn. Varla voru þau kaup gerð til að fá að reka sjónvarpsstöð sem hefur verið að drulla á sig frá stofnun. Það hlýtur einhver viðskiptaáætlun um eitthvað hagkvæmt að hafa legið að baki. Og það kom fljótlega í ljós að síminn ætlaði einfaldlega að selja adsl og breiðbandsþjónustu með kaupunum.
Geir Haarde treystir yfirburða stöðu Íslands á fjarskiptamarkaði!!! Ísland er langstærst á Íslandi!!!
Svona hefðu fyrirsagnirnar getað litið út án þess að ýkjur eða lygar kæmu nálægt.
Það hlýtur að teljast undarlegt þegar einn helsti boðberi frjálshyggju á norðurlöndum býr þannig um hnúta að ríkisfyrirtæki haldi yfirburðastöðu á samkeppnismarkaði. Að það sé örugglega svo stórt og með svo mörg tromp á hendi að þegar það er selt eigi enginn séns í það, ekki næstu 200 árin a.m.k.
Af hverjur gerir Geir þetta? Er það til að hefna sín á 365 eftir fjölmiðlafrumvarpsumstangið? Er það til að fá sem mest verð fyrir símann? Það væri varla í anda frjálshyggju að reyna að hífa sem mesta peninga inn í ríkissjóð á kostnað stórfyrirtækja.
Hver svo sem skýringin kann að vera er þetta auðvitað vægast sagt ógeðfellt mál. Ég skil ekki hvernig hægt er að gagnrýna umsvif orkurveitunnar, sem eru þó gagnrýniverð, á meðan síminn er að versla sjónvarpsstöðvar til að halda í einokunartilburðina.