Rokk!!?
Það er kjánalegt að láta ennþá eins og Magni sé bara einhver kjáni sem kann ekkert annað en að syngja leiðinleg popplög og gefa úr koverlagaplötur. Magni hefur sýnt það í sjónvarpinu að hann kann bæði að spila á gítar og syngja rokklög. Hann kann meira að segja að syngja með sömu rödd og söngvarinn í Live (sem ég man ekki hvað heitir) en bara aðeins betur.
Það er enn kjánalegra að láta eins og það sem magni hefur gert með á móti sól sé ekki ömurlegt drasl. Í dag er ekki hægt að fara í bónus eða kveikja á sjónvarpinu á daginn án þess að rekast á einhvern endurtekinn lagstúf og texta sem fjallar á aulalegan hátt um sæta stelpu eða söknuð eða einhvern fjandann. Svo virðist sem ljósvakamiðlarnir hafi ekki fattað að söngur er ekki afturvirkur. Forsvarsmenn fjölmiðla virðast halda að þegar Magni batnar eigi það sama við um það sem hann hefur gert á undan. Svo er alls ekki.
Ekki frekar en að pistlarnir sem ég skrifaði á þessa síðu árið 2002 hafi batnað um leið og ég hef náð betra valdi á íslenskri tungu og farið að skilja samfélagið á annan hátt. Pistlarnir eru alveg jafn ungæðislegir og stundum einfeldningslegir.
Samskonar áhrif hafa margoft komið fram þegar t.d. rithöfundar verða frægir. Þá grefur fólk upp gamlar smásögur skrifaðar af óþroskuðum höfundum og fer að lesa alls kyns snilld út úr þeim. Atriði sem höfundur hafði enga burði til að skilja þegar hann var 15 ára. Fólk heldur það samt og fjölmiðlar blása það upp. Það er kjánalegt.

1 Comments:
þetta er líka algengt með málverk hjá frægum málurum. Fólk er að fróa sér yfir einhverju ónýtu krassi sem fannst þegar viðkomandi var nánast ómálandi...
Post a Comment
<< Home