Thursday, March 06, 2003

George W. Bush, snillingur á sviði utanríkismála?

Ég hef verið að spá undanfarið hvers vegna Bush stjórnin er ekki enn búin að ráðast inn í Írak. Þetta er ekki vegna þess að ég njóti þess að horfa á fréttaflutning frá heldur vegna þess hve ákveðin stjórnin gefur sig út fyrir að vera í fjölmiðlum. Þeir ætla inn. Það er ekki flóknara en það.

Ég hef ekki komist að neinni endanlegri niðurstöðu í spám mínum en langar þó að segja lesendum frá einni fjarstæðukenndri en alls ekki ómögulegri. Það er nefinlega hugsanlegt að Bush sé að fara rétt að. Að hann eigi eftir að tryggja frið með því að undirbúa stríð.,,Si vis pacem, para bellum." Það sem hann er að gera er það að hann segist tilbúinn að sniðganga öryggisráðið í baráttu sinni við harðstjóra, hryðjuverkamenn o.s.frv. Stjórnin virðist herðast í baráttunni og svo virðist sem hann sé að fá einhverju framgengt með þessum skrípalátum sínum. Írakar hafa verið samvinnuþýðir að einhverju leiti og einhver framför hefur orðið á vopnaeftirliti, þó lítil sé.

Nú er ég að segja það að ef eitthvað er til í því sem ég er að bulla, þá hefur Bush ákveðið þetta í upphafi. Mjög miklar upplýsingar um hugsanlegt stríð voru gefnar fjölmiðlum og það þarf enginn að segja mér að þetta hafi ekki hrætt Saddam örlítið. Ef eitthvað er til í þessu þá fagnar Bush eflaust andstöðu Evrópu-ríkja, því þar fær hann tækifæri til að sýna hvað honum er alvara. Þau koma svo með tillögur sem Bush er kannski tilbúinn að mæta á miðri leið, harkan hans og sanngirni Frakka. Byggt er upp hatur á frökkum sem sýnir enn og aftur hvað Kaninn er einbeittur í því að ryðja Saddam frá. Hörkutólið gæti orðið svo hart að meira að segja Saddam Hussein fer að hræðast og hrökklast í burtu.

Svona væri kannski hægt að vinna einhverja landvinninga og gæti verið geðveikisleg lausn Bush á ógninni sem stafar af hungurmorða þjóð með brjálæðing í æðstu stöðu.

Ég vil taka það fram að ég trúi ekki sjálfur á það kjaftæði sem kemur fram að ofan. Ég mun halda áfram að trúa á frið frekar en stríð og eftirlit frekar en árásir. Það er þó orðið ansi undarlegt að ekki sé enn búið að bomba Bagdhad, miðað við fullyrðingar Bush og Blair. Ætli alþjóðasamfélagið hafi virkilega eitthvað að segja?

0 Comments:

Post a Comment

<< Home