Saturday, May 27, 2006

Ef við neyðumst til að borga einhverjum sæmileg laun er eins gott að það séu engir helvítis íslendingar

Mér fannst voðalega skrítið að heyra frá því að Landsspítalinn væri farinn að flytja inn fólk frá Danmörku til að fylla í stöður hjúkrunarfræðinga, sem mikil vöntun er á. Það er eðlilegt að forstöðumenn á Lsh reyni að leysa þann vanda sem staðið er frammi fyrir, en sú leið sem varð fyrir valinu til að leysa þetta tiltekna mál er mjög undarleg.

Lsh valdi að borga dönskum hjúkrunarfræðingum hærri laun en þeim íslensku fyrir að koma hingað í vinnu. Til að komast framhjá því að sýna raunverulegar launatölur var gerður samningur við starfsmannaleigu sem fær greiðslu frá Lsh, en hjúkrunarfræðingarnir fá svo borgað úr buddu leigunnar.

Með því að gera þetta getur hjúkrunarforstjóri á Lsh sagt: Ég veit ekki hvað þeir fá í laun, við borgum bara starfsmannaleigunni.

En ég veit að launin eru hærri en meðal hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Grunnlaun hjúkrunarfræðinga í Damörku eru um 270 þús. ísk. Á Íslandi eru þau 200 þús. Hver myndi svo sem flakka á milli landa fyrir laun sem eru lægri en viðkomandi fær nú þegar. Og það er ekki eins og hjúkrunarfræðingar eigi erfitt með að fá vinnu í Danmörku. Samkvæmt formanni félags hjúkrunarfræðina vantar 1100 hjúkkur í Danaveldi nú þegar, og vöntunin eykst ár frá ári.

Ég myndi því ætla að hjúkrunarfræðingar geti vel fengið ágæt tilboð í sínu eigin landi. Tilboðið frá Íslandi var einfaldlega betra. Með þessu tilboði fáum við svo til okkar danskar hjúkkur sem ekki þekkja spítalann, lyfin sem á honum eru notuð og kunna ekki íslensku

Allt þetta svo að ekki þurfi að gera betur að íslensku heilbrigðisstarfsfólki. Eða á þetta kannski að gefa fólki færi á að rifja upp skóladönskuna?

0 Comments:

Post a Comment

<< Home