Sunnudagskvöld með Árna Gunnari
Þessa dagana er mikið að gerast. Fyrst ber að nefna að tölvukerfi jósef-k. hefur verið endurnýjað og með betri tækni koma betri tímar. Annað og ómerkara er t.d. framboð Gísla Marteins, stjórnarskrárdrögin í Írak, brottflutningur frá Gaza o.fl. skemmtilegt.
Ef við lítum á stöðu Gísla Marteins Baldurssonar þá verð ég að segja að maðurinn er augljóslega snillingur. Mér sýnist Gísli hafa farið hárrétta leið upp metorðastigann innan flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn er gríðarlega stór og erfitt að skara framúr sem stuttbuxnastrákur. Gísli Marteinn hefur ekki reynt að vera áberandi innan flokksins heldur utan hans og sankað þannig að sér ótrúlegum fjölda aðdáenda. Fyrir þetta fær hann tvö, ef ekki þrjú, prik frá mér persónulega.
En ég hef verið í vandræðum með það hvernig ég eigi að taka þessum fréttum. Ég tel nokkuð víst að Gísli Marteinn muni sigra í prófkjöri. Mér finnst hann líka mun álitlegri kostur en Vilhjálmur Vilhjálmsson, enda er hann einhver sviplausasti pólitíkus síðari ára og ætti að taka við samgönguráðuneytinu af Sturlu Böðvarssyni, þeim allra sviplausasta í bransanum.
Það sem ég þarf að gera upp við mig er: Vil ég að Vilhjálmur vinni prófkjörið og minnki þannig líkurnar á að sjálfstæðisflokkurinn komist til valda, eða vil ég að þegar sjálfstæðisflokkurinn tekur borgina verði það a.m.k. Gísli Marteinn sem verður borgarstjóri?
Eftir óhemju lélegt ár hjá R-listamönnum veit ég satt að segja varla hvort ég vilji að sama óhæfan haldi í borgina. Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvaða borgstjóraefni ég vildi frekar sjá en Gísla Martein. Ekki finnst mér Stefán Jón góður kandídat, Árni Þór er bölvaður durgur og alls ekki fabúlus þrátt fyrir kynhneigð sína, Björg Birgis er hörmung og Steinunn Valdís er alltof lítið spennandi. Kannski Dagur B. Eggerts, sem nú ætlar að flýja land, væri skásti kosturinn. Ég er því margklofinn að innan í þessu máli en verð sennilega búinn að ákveða mig í næstu viku.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home