Friday, May 02, 2003

Fasismi gegn Nasismanum

Það kemur fram á mbl.is að þessa dagana sé verið að kjósa Þjóðverja allra tíma. Ekki þykja það nú merkileg tíðindi enda fara slíkar kannanir fram daglega um allan heim. Eflaust hafa verið uppi margir góðir Þjóðverjar og nægir að nefna Claudiu Schiffer fyrirsætu, Steffi Graf tenniskonu og Lothar Matteus knattspyrnumann því til sönnunar. Þeir eru þó eflaust aðeins fleiri Þjóðverjarnir sem gætu orðið Þjóðverjar aldarinnar.

Það er þó athyglisvert að sjónvarpsstöðin sem sér um þessa kosningu hefur ákveðið að taka ekki gild atkvæði sem koma í hlut Adolfs Hitler. Þau verða virt að vettugi og hlýtur það að þýða að þeir sem hafa umsjón með þessari kosningu séu í raun hræddir um að Dolfi nái kjöri. Þeir hafa því ákveðið að grípa til fasískra aðgerða, fremur en að hugsanlegur hugur þjóðarinnar komir fram. Þetta þykir mér kaldhæðnislegt, og spái í í því hvenær þýska þjóðin ætlar að fara að taka ábyrgð á gjörðum sínum og reyna að sættast við seinni styrjöld, fremur en að kæfa allt í fæðingu sem viðkemur nasistaflokknum og stjórnartíð hans.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home