Wednesday, February 12, 2003

Powell grípur úr lausu lofti

Colin Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna er orðinn mikið fyrir að ákveða hluti, breyta þeim eftir eigin höfði og kasta þeim svo framan í heiminn. Hann hefur lengi haldið fram tengslum Íraks og Al Quada á þess að hafa fyrir því sannanir. Athygli vekur að einungis Blair og Powell er nógu vitlausir til að halda þessu fram. Það hefur hins vegar margoft komið fram meðal prófesora og leiðarahöfunda stórra dagblaða eins og N.Y. Times og Washington Post að tengslin séu ekki til staðar. Það helsta sesm mælir með því að Bin Laden og félagar séu að hanga í Írak er það að í N-hluta Írak, þar sem völd Saddam Hussein er lítil sem engin, er talið að séu æfingabúðir Al Quada.

Þetta er náttúrulega allt ljómandi skemmtilegt enda ekki hægt að grípa til alvöru aðgerða án þess að þær séu í nafni ,,Stríðsins gegn hryðuverkum." Í gær kom Bin Laden svo fra á sjónvarpstöðinni Al jazeera þar sem hann lýsti stuðningi við Írösku þjóðina, sagði árás á hana vera árás á Íslam o.s.frv. Vegna þessara yfirlýsinga Bin Laden hefur vinur okkar Colin Powell ákveðið að sönnuð séu tengsl og samstarf Al Quada og Saddam Hussein. Hann segir einfaldlega ,,Þar sem Bin Laden lýsir yfir stuðningi við Írak, þá sannast tengslin." Sennilega mun hann sanna hryðjuverkatengsl mín og Real Madrid fljótlega, enda hef ég oft lýst yfir stuðningi við þá glæpamenn og hlýt því að vera nátengdur þeim. Það sem er nú undarlegast við þessa fáránlegu fullyrðingu Powels er það að í ræðu Bin Laden kemur fram megn vanþóknun á Saddam og hans stjórnarháttum, hann er kallaður sósíalisti, heiðingi og ýmsum illum nöfnum. Bin Laden leggur stuðningsyfirlýsinguna þannig fram að hann og aðrir múslimar neyðíst til að styðja baráttu Saddam.

Ef þetta sannar hryðjuverkatengsl þá held ég að orðið sannanir hafi endanlega misst alla meiningu, enda hefur það verið að gerast hægt og rólega í þessar Íraksdeilu. Fyrir mér er þessi stuðningur svona eins og þegar KR og Valur eigast við í knattspyrnu og maður hugsar með sér ,,Ætli ég verði ekki að halda með Val, því ég þoli ekki KR"

ÁGÁ

0 Comments:

Post a Comment

<< Home