The look of love
Fyrirsögn er titill lags eftir Burt Bacharach, en hann er einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum. Lagið hefur unnið sér það helst til frægðar að vera sungið af Dusty Springfield og koma fram í kvikmyndinni ,,Casino Royale," einni frægustu kvikmynd Peter Sellers. Peter Sellers er öllu þekktari fyrir leik sinn í kvikmyndinni um bleika pardusinn, þar sem hann fór með hlutverk leynilögreglumannsins Jaques Clouseu.
Allt undantalið breytir því ekki að hið nýja útlit síðunnar minnar er ekki útlit ástarinnar, heldur er það bara nýtt af því að ég vil ekki vera eins og betarokk eða ámóta skítapakk. Því ákvað ég að breyta litunum aðeins. Ég kann samt sem áður mjög takmarkað í svona forritunardóti og því verð ég að prófa mig áfram næstu daga. Þetta á eflaust eftir að gera fjölmargan manninn súran og jafnvel skúffaðan, en ég skal bara reyna að vera þeim mun duglegri við að birta pistla og annað góðgæti til að bæta fyrir miskann. Þeir glöggustu hafa væntanlega einnig glöggvað sig á því að ég hef íslenskað spássíuna með hlekkjunum og er bara ansi stoltur af. Það tók heilar 6 mín að læra að rita stafi upp á íslenska mátann og því er ekki undarlegt að ég hafi ekki lagt í það fyrr, enda hefur mikið verið að gera í annars viðburðalitlu lífi mínu.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home