Wednesday, February 05, 2003

Sjúkrahússparnaður

Rannveig Guðmundsdóttir lagði fram fyrirspurn á háa Alþingi í gær varðandi sjúkrahúskostnað. Ég ætla ekki að útlista því sérstaklega hér en vísa á fréttablaðið.

Ég fékk hugmynd sem gæti nýst sjúklingum vel er ég las fréttina um Rannveigu og hef hugsað mér að deila henni með lesendum mínum. Hugmyndin er sú að ef þú er veikur, ekki með flensu heldur alvarlega, þá skaltu kvarta rosalega, fara jafnvel að gráta vegna sársauka og missa andann í tíma og ótíma. Þetta veldur því að þú þarft að gangast undir fleiri rannsóknir en ella, en þú þarft ekki að borga fyrir þær. Þetta er reyndar allt háð því að þú virðist svo skelfilega veikur að það þurfi að leggja þig inn. Staðreyndin er nefinlega sú að þeir sem gista á spítala þurfa ekki að greiða fyrir þjónustuna. Þeir sem koma hinsvegar á sjúkrahúsið, fara í nokkrar rannsóknir og eru sendir heim, þurfa að greiða fleiri þúsund kr. fyrir sérfræðiþjónustu. Því er mun hagkvæmara að vera, eða þykjast, mikið veikur.

Ég veit að þetta sparnaðarráð er alls ekki þjóðhagslega hagkvæmt en ef við stöndum saman, öll sem eitt, í nokkur ár, og þykjumst miklu veikari en við í raun erum, þá mun kerfinu verða breytt og þetta ósamræmi lagað. Ég er ekki að leggja til að hár sjúkrahúskostnaður verði lagður á greyin sem liggja mánuðum saman á sjúkrahúsum en svona ósamræmi fær fólk bara til að fylgja mínum ráðum.

Þetta sparnaðarráð var í boði arnigunn.tk

0 Comments:

Post a Comment

<< Home