Wednesday, February 26, 2003

Bandaríkjamenn endanlega týndir í egin hroka

Það kemur fram á forsíðu fréttablaðsins í dag að Kaninn sé endanlega búinn að ákveða innrás í Írak. Ákveðið hefur verið að ráðast inn, þrátt fyrir nýlegar kannanir sem sýna það að meirihluti bandarísks almennings er ekki hlyntur einhliða árásum Breta og Bandaríkjamanna. Það er athyglisvert að sjá það að nú hafa þeir ákveðið að kasta málinu úr sínum höndum. Nú er verið að taka fyrir nýja tillögu Breta í öryggisráðinu og hafa Bandaríkjamenn sett dæmið upp með þeim hætti að ekki sé verið að greiða atkvæði um stríð í Írak, sú ákvörðun hafa þegar verið tekin. Atkvæðin snúist um það hvort árásirnar verði með samþyki öryggisráðsins.

Þannig er verið að reyna að knýja menn til samstöðu með því að leggja trúverðugleika S.Þ. undir. Bandaríkjamenn eru tilbúnir að leggja samtökin í hættu vegna hagsmuna sinna í Írak. Þessa aðgerð má heimfæra yfir á íslenskan veruleika. Þá myndi Sjálfstæðisflokkurinn segja Alþingi óþarft af því að þeir tapa í kosningum, eða KR leggja niður úrvalsdeildina í knattspyrnu, því að ef þeir eru ekki meistarar þá er deildin varla trúverðug.

Þessi frekja, yfirgangur og fífldirfska Bandaríkjamann á eflaust eftir að ýta undir kanahatur framtíðarinnar. Ég held að þeir ættu að fara aðhugleiða það að þeir þarfnast Evrópu, alveg eins og við þörfnumst þeirra. Það klæmi mér ekki á óvart, ef fram heldur sem horfir, að Kaninn eigi eftir að sækja um að komast í myntbandalag Evrópu vegna hruns dollarans innan fárra áratuga.

Að lokum er rétt að minnast á það sem kom fram í lok síðasta þáttar af 60 mínútum. Þar hélt Andy Rooney sinn vikulega pistil og fjallaði hann um afstöðu Evrópuþjóða til stríðs í Írak. Hann endaði pistil sinn nokkurn veginn á þessa vegu ,,Bandaríkjamenn mega vera á móti stríði gegn Írak, það er þeirra réttur. En ekki Frakkar, þeir skulda." Ef Bandaríkjamenn sem hafa tamið sér gagnrýna hugsun og eru velvirtir fyrir vikið, hafa einnig tamið sér þennan hugsanahátt, þá held ég að hver maður sjái að hið nýja ,,trend" Kanahatur, er ekki tilkomið vegna tilviljunar.


ÁGÁ

0 Comments:

Post a Comment

<< Home