Refsingar Bandaríkjamanna
Í breska blaðinu The Observer frétt þar sem fram kemur að Bandaríkjamenn hyggjast refsa Þjóðverjum fyrir að styðja ekki fyrirhugaða innrás inn í Írak. Refsingin mun, ef af verður, verða flutningur allra herdeilda BNA í Þýskalandi frá landinu. Þetta myndi kosta Þjóðverja milljarða enda þúsundir hermanna staddir í landinu sem þarf að fæða og klæða. Þessar refsiaðgerðir eru ætlaðar sem víti til varnaðar fyrir önnur ríki og á væntanlega að kenna þeim að fylgja Kananum í einu og öllu.
Í ljósi þessa vil ég spyrja: ,,til hvers eru Bandaríkjamenn yfirleitt í S.Þ. og NATO." Til hvers eru samtök ef hlýða ber Bandaríkjunum í einu og öllu. Bæði fyrrnefnd samtök byggja á lýðræði, þó svo að neitunarvald stórra þjóða sé vissulega umdeilanlegt, og lýðræði gerir ráð fyrir skoðana- og tjáningarfrelsi. Það er ekki að sjá annað en að Bandaríkjamenn séu með þessu að taka undir þann háværa róm sem segir þá halda úti heimsvaldastefnu. Eða hvað er það annað en heimsvaldastefna að refsa öðrum lýðræðisríkjum fyrir að hafa ekki sömu skoðanir BNA, þrátt fyrir að mál þessi séu afgreidd í lýðræðislegum samtökum.
Ég held að ríkisstjórn BNA ætti að fara að hugsa um þá staðreynd að andstaða við sjónarmið þeirra og ,,Kanahatur" vex með degi hverjum. Sérstaklega er þetta hjá þeim þjóðum sem hafa verið stríðshrjáðar og vita hvað það þýðir að láta sprengja heimili sín og sjá ástvini sína myrta, pyntaða og konur sínar vera nauðgað.
Ath. að ef smellt er á fyrirsögn má lesa frétt um málið á heimasíðu The Observer
ÁGÁ

0 Comments:
Post a Comment
<< Home