Monday, February 17, 2003

Aumingjaskapur og hálfkák Samfylkingarmanna

Allir sem fylgst hafa með uppgangi Samfylkingar í skoðanakönnunum hafa væntanlega tekið eftir þeirri hræðslu sem einkennir flokksmenn þess flokks eftir nýfengna frægð. Samfylkingarmenn eru sannarlega ekki að sanna sig þó svo að flokkurinn sé kannski loksins að uppskera. Þetta má sjá í svörum þeirra í hinum ýmsu fjölmiðlaviðburðum. Samfylkingarmenn eru farnir að sitja svo svakalega á eigin skoðunum að suma er varla hægt að taka mark á lengur. Þetta eru hlutir sem hafa hægt og rólega orðið meira áberandi eftir því sem fylgið eykst í könnunum.

Sem dæmi þess ætla ég að benda á skemmtilega fyrirspurnasíðu hjá vefnum aldeilis.net, þar sem þeir hafa sent 8 frambjóðendum hvers flokks úr öllum kjördæmum fyrirspurnir. Þessar fyrirspurninr varða komandi stríð í Írak og afstöðu þingmanna til þess. Þar er að finna lítið um svör frá flestum frambjóðendum, en eins og gefur að skilja eru frambjóðendur Vg áberandi bestir og samkvæmir sjálfum sér. Þar er ekki að finna klisjuleg svör í nafni flokksins heldur skoðanir þeirra einstaklinga sem sitja fyrir svörum. Ég hef ákveðið að birta svar Gísla S. Einarssonar, þingamanns Samfylkingar á Vesturlandi:

Það var tekin sameiginleg afstaða í þessu máli sem gildir fyrir alla og þið hafið fengið svarið

Svona svör sýna ekkert nema aumingjaskap og ósjálfstæði þingmanna. Það er í lagi að Össur svari beint fyrir flokkinn, en að 5. þingmaður vesturlands skuli ekki geta sagt eigin skoðun, það nær ekki nokkurri átt.

Ég vil því hvetja Samfylkingarmenn til að tapa ekki manndómnum í tilraun til að vinna slaginn. Þó svo að þeir fái atkvæði okkar í skoðanakönnunum þá eru þeir ekki búnir að tryggja krossinn á seðlinum. Það hefur sannað sig að menn sem sitja ekki á skoðunum sínum njóta almennrar virðingar almennings fyrir vikið, þrátt fyrir að fólk sé ekki sammála þeim. Dæmi um þetta eru Steingrímur J. Sigfússon og Pétur Blöndal. Pétur er reyndar kannski ekki besta dæmið þar sem bláa hönd Davíðs hefur nú þegar ákveðið að hann skuli ekki hljóta ráðuneyti þrátt fyrir að vera í 2. sæti í sínu kjördæmi.

Þess ber að lokum að geta að enginn þingmaður Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur svarað spurningunum, eða að minnsta kosti ekki fengið svör sín birt ennþá. Spurningar og svör má lesa hér.


ÁGÁ

0 Comments:

Post a Comment

<< Home