Hansi gefur ekki ástæðu til innrásar
Hans Blix, forystumaður vopnaleitarmanna í Írak, hélt í dag tölu í aðalstöðvum SÞ í New York. Þar kom ýmislegt fram um vopnaeign Íraka og óútskýrð brotthvörf hluta þeirra. Fram kom að Írakar hefðu í raun brotið skilmála SÞ um afvopnun og að öruggt væri að ekk væri hreint mjöl í pokahorninu. Hins vegar sagði Hansi að hann drægi í efa ýmsar ,,sannanir" Colin Powell, utanríkisráðherra BNA, og gaf sterklega í skyn að ekki væru nægar ástæður til innrásar. Einnig sagði El Baradei að ekki væru neinar sannanir fyrir virku kjarnorkuvopnaprógrammi Íraka. Eftirlitsskýrslu Hans Blix má lesa hérna.
Þetta mun hugsanlega fresta stríði um óákveðin tíma en verður þó enn að teljast ólíklegt að ekki verði að árás. Við stöndum þó enn í þeirri von að ekki þurfi að myrða 3-500.000 óbreytta borgara, að ekki verði að olíukreppu og frekara falli gjaldmiðla o.s.frv. Umstangið í kringum væntanlega árás hefur þó haft verst áhrif á sjálf Bandaríkin. Þar hefur dollarinn hríðfallið, fólk er farið að teipa sig inni í húsum sínum eða fela sig í kjöllurum í hræðslu sinni við hryðjuverkaárásir og fólk er farið að kaupa gull frekar en verðbréf til að tryggja afkomu sína að afloknu umstangi. Þá er maður farinn að spyrja sig hvers virði það sé að ráðast á Írak. Er það virkilega svo mikils virði að Bush, Rumsfeld og nú síðast Powell, séu tilbúnir að leggja líf og afkomu þegna sinna í hættu. Eða er Bush bara svona hrikalega vitlaus í fjármálageiranum.
Að lokum vil ég benda á það að allar helstu ræður á Alþingi Íslendinga, hjá NATO, SÞ, stefnuræður Bandaríkja forseta og stærri málum hjá ESB er útvarpað, oftar en ekki beint, í þætti Hallgríms Thorsteinssonar. Hann er á útvarpi Sögu dag hvern á milli 15 og 17 og ætti enginn að missa af honum.
ÁGÁ

0 Comments:
Post a Comment
<< Home