Wednesday, February 05, 2003

Powell sannar næstum því vopnaeign Íraka

Í dag var fundur hjá öryggisráði SÞ og urðu þar stórtíðindi. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mætti vel undirbúinn á fundinn og sýndi töluvert magn sönnunargagna sem þó voru að mestu vitnisburðir fyrrum hermanna Írakshers. Ég hlustaði á meiripart ræðu hans á útvarpi sögu þar sem hún var send út í þætti Hallgríms Thorsteinsson (ath. að ættarnöfn eru ekki beygð eins og íslensk eftirnöfn). Powell kom bara ágætlega útúr þessu og er ekki laust við að hann hafi að einhverju leiti fullnægt kröfum okkar sem getum ekki samþykkt stríð án sannana. Sannanirnar voru þó eins og áður sagði vitnisburðir og ágiskanir út frá gervihnattmyndum og mun stórmiðillinn arnigunn.tk því ekki samþykja innrás Bandaríkjanna inn í Írak enn sem stendur.

Hér má lesa ítarlega um ræðu utanríkisráðherrans, en ef smellt er á fyrirsögnina að ofan er hægt að skoða stutta frétt um málið á mbl.is

0 Comments:

Post a Comment

<< Home