Nýjir og betri tímar?
Í dag stöndum við á tímamótum af tvennum sökum. Í fyrsta lagi er teljarinn kominn upp í 1000. Sem barn þá nennti ég aldrei að telja upp i þúsund, en Heiða frænka taldi stundum miklu lengra. Mér fannst það líka eitthvað svo tilgangslaust eftir að ég fattaði táknið fyrir óendanlegt. Því var bara hægt að segja það og þá var maður búinn að telja miklu lengra en Heiða frænka. Þegar kemur að heimasíðunni, þá þarf maður víst að vera með svona teljara ef maður ætlar að vera kúl. Hann sýnir hversu margir, eða í mínu tilviki fáir, fletta síðunni manns og koma í veg fyrir að maður þurfi að telja sjálfur. Jæja, hann er allavega kominn upp í 1000.
Á þessum tímamótum hef ég ákveðið að breyta um útlit á síðunni, eins og ég sagði í gær, og held að ég haldi mig bara við þetta rauða og bláa. Þannig hef ég opnað síðuna formlega með hinu nýja útliti og óska lesendum að sjálfsögðu til hamingju með það.
ÁGÁ

0 Comments:
Post a Comment
<< Home