Friday, April 29, 2005

Frumraun

Í dag er föstudagur og ég borðaði af því tilefni hamborgara. Einhverjir þekktustu hamborgarar meðal Íslendinga eru Tomma-Hamborgara en eftir þeim hét keðja skyndibitastaða víðsvegar um Ísland. Fáir vita að Tomma-Hamborgarar voru enn til á Egilstöðum, löngu eftir að útibú í Reykjavík, á Akureyri og víðar höfðu sagt skilið við þennan heim. Egilstaðir eru á Héraði sem er eitt þéttbýlasta svæðið á austurlandi. Hérað er stytting á Fljótsdalshérað, en það umlykur Löginn og í héraðinu er mikið um hreindýr. Hreindýr voru fyrst flutt hingað til lands 1771 frá Noregi. Eins og er á Ísland í deilum við Norðmenn um Svalbarðasvæðið vegna gjöfulla fiskimiða þar í grennd. Einkum er það síld sem þar er veidd. Í Danmörku er Sild (sem þýðir síld) notað á sama hátt og gella á Íslandi. Á meðan Jón Thoroddsen, fyrsti skáldsagnahöfundur Íslendinga, bjó í Danmörku barðist hann í Slésvíkurstríðinu. Þessi fyrsta skáldsaga hans heitir Piltur og Stúlka, en Jón lést áður en hann náði að ljúka við seinni skáldsögu sína Maður og Kona. Önnur skáldsaga sem aldrei var kláruð er sagan af Góða Dátanum Svejk, en Jaroslav Hasek lést, eins og Jón, áður en verkinu lauk. Á Íslandi er algengt að verkum ljúki ekki á réttum tíma, t.d. má nefna Öskju, Náttúrufræðahús Háskóla Íslands. Askja er eldstöð á Austurlandi, en þar er einnig Atlavík. Ringo Starr kom til Atlavíkur árið 1984. Hann var trommari í hljómsveitinni the Beatles, en bassaleikari í þeirri sveit var Paul McCartney. Á tímabili var Paul mjög upptekinn við að reyna að búa til þungarokkslög. Þetta gerði hann til að sýna lýðnum að hann kynni sko alveg að rokka á borða við hljómsveitir eins og The Who. Sú hljómsveit er einmitt upphálds hljómsveit undirritaðs. Undirritaður er nýr aðstoðarritstjóri Jósef-K.tk og var ráðinn til að fræða lesendur. Hvatinn að þeirri fræðslu var auglýsingaherferð Morgunblaðsins.

ÁGÁ.

Innskot aðalritstjóra:
Eins og sjá má getur nýr aðstoðarritstjóri komið miklum upplýsingum að á lúmskan hátt með tengingum við aðalatriði greina og uppfrætt lesendur án þess að þeir taki eftir. Þetta er það sem við köllum AJS-stefnuna (Abraham J. Simpson).
Jósef K.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home