Niðurlægjandi upprisa við stórkostlega opnun josef-k.tk
Enn og aftur læt ég í minnipokann. Enn og aftur þykist ég hafa eitthvað fram að færa. Nú þegar leiðin að lífsgátunni styttist um nokkur fet vona ég að þessu framlagi til þeirra feta verði vel tekið.
Margir hafa rekist á Jósef K. í gegnum tíðina, en fyrir þá sem ekki hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi mun ég útlista honum í stuttu máli.
Jósef K. var tékkneskur bankamaður. Saga hans var sögð í Réttarhöldum Kafka, en í þeirri bók er hann kærður fyrir glæp sem enginn virðist þekkja og er leiddur fyrir dómstóla sem enginn virðist skilja. Jósef K. þarf að berjast vonlausri baráttu gegn ofríkiskerfi þar sem besta lausnin virðist vera að finna góðan þjálfara sem ,,kann" á dómara, fremur en að sanna sakleysi sitt, enda eru dómsmálin orðin svo mörg að lagabókstafurinn sjálfur er löngu hættur að skipta máli.
Ég vil ekki verða Jósef K. og óska þess ekki að nokkur annar maður þurfi að upplifa svipaðar hremmingar og hann. Ég hef þó ekki tíma til þess að beita mér stórkostlega fyrir því að breytingar á íslenska kerfinu séu í rétta átt (ekki síst vegna þess að skoðanir mínar passa ekki inn í íslenska stjórnmálaflokka) og því ætla ég, eins og áður sagði, að reyna að mjaka okkur mannfólkinu örlítið nær lífsgátunni með skrifum á þessa síðu.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home