Friday, April 29, 2005

Breytt ritstjórnarstefna - Nýr aðstoðarritstjóri

Undanfarna mánuði hefur Morgunblaðið rekið auglýsingaherferð þar sem m.a. kemur fram að Morgunblaðið sé það blað sem flestir Íslendingar telja sig geta lært af. Jósef-K. er einn af litlu fjölmiðlunum á markaðnum en lætur engan bilbug á sér finna.

Til að standast þessa hörðu samkeppni ofan úr Kringlu hefur Jósef-K. ráðið til sín aðstoðarritstjóra. Hann er sennilega flestum lesendum kunnur fyrir kvart, kvein og orðlengingar, en sá ber nafnið Árni Gunnar Ásgeirsson. Áhersla er lögð á að hann sinni virkri fræðslu lesenda í anda fræðslustefnu Abraham J. Simpson. Mörgum þykir kannski skrýtið að nota eigi aðferð Abe til uppfræðslu, en hann er einkum þekktur fyrir að tala úr samhengi, í belg og biðu og jafnvel sofna í miðri setningu. Rannsóknir, pantaðar af Jósef-K.tk, framkvæmdar af Wice Copperhouse Pooper hafa hins vegar sýnt fram á að þessi aðferð þykir best til uppfræðslu áreitiskynslóðarinnar, enda má hún engan tíma missa og verður að treysta á samhengislausar setningar sér til uppfræðslu.

Ritstjórnarstefnan skýrir sig sjálf í framhaldinu, en ÁGÁ er boðinn hjartanlega velkominn í herbúðir okkar.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home