Tuesday, June 03, 2003

Ég...

ég er þreyttur á umhverfinu og ætla að kvarta yfir því opinberlega, hér þeas

ég er í þykjustunni menningarviti og hata þá sem eru það ekki

ég er óhræddur við að nota ensk terms í skrifum mínum og skáletra þau

ég nota ekki hástafi af því að þá lítur út fyrir að ég sé að flýta mér að skrifa þó svo að ég hugsi rosalega lengi um hvernig ég get komið töff út þegar ég blogga

ég ætla að gefa út bók sem fjallar ekki um neitt sérstakt... svona ýkta lýsingu á atburðarrás unglings þar sem ég segi frá því hvernig ég negli gellur og drekk ódýran bjór... bókin verður sennilega kölluð önnur bloggbókin og verður borin saman við beturokk

ég þykist annað slagið hafa vit á pólitík af því að ég sé fallega alþingiskonu vekja máls á einhverju

ég skrifa ljóð á ensku á heimasíðuna mína þegar mér líður ekki vel

ég lýg því að ég drekki kristal á blogginu mínu... það er af því að ég skammast mín fyrir að drekka mikið kók og borða snúð með

ég set út á fólk sem hlustar á popptónlist eða kýs að horfa á hollywúdd myndir

ég hef háleit markmið og segi frá þeim við öll tækifæri... að sjálfsögðu á blogginu mínu

ég vitna sífellt í það litla sem ég veit um mannkynssöguna

ég lýg því að hallgrímur helgason sé frændi minn

ég reyni að vingast við katrin.is í gegnum msn

mér finnst íslenskir tískurithöfundar töff og læt gjarnan vita af því... samt nenni ég ekki að lesa bækurnar þeirra

ég dyssa djúpulaugina við hvert tækifæri en missi samt ekki af þætti

ég kýs sjálfstæðisflokkinn en þykist kjósa Vg... því að ég er hræddur um að vinstrimenn myndu stela tölvunni minni kæmust þeir til valda

ég linka á sjálfan mig á tilverunni þegar mér finnst ég hafa eitthvað merkilegt að segja

ég er búinn að prenta út leiðbeiningarnar á blogger.com svo að ég geti lesið þær í kennslustundum

ég hata tísku en geng samt í adidas superstar skóm

ég reyni að vekja athygli á mér þegar ljósmyndarar frá djamm.is er á kreiki

ég drekk kaffi þó að mér finnist það vont

ég er sannkallaður bloggari og er stoltur af því

Fannst rétt að slíta þessum bloggferli mínum á þessum nótum og sína mitt rétta sjálf. Til aðdáenda vil ég segja: Þetta er leiðinlegt, pólitík er asnaleg og ég er búinn að fá nóg. Þess má þó geta að ég hef í hyggju að halda adressunni, arnigunn.tk, enda er hún ágæt.
Blogg er æði, það lengi lifi

0 Comments:

Post a Comment

<< Home