Tuesday, April 05, 2005

Frumburðir geta líka eignast stóra bræður

Ég er frumburður foreldra minna og hef engan sérstakan áhuga að breyta því. Það gæti samt sem áður breyst fljótlega og því fylgir eftirfarandi:

Ég vil benda öllum lesendum á það að vera fyrirfram hneykslaðir á væntanlegu frumvarpi Björns Bjarnasonar Benedikts um breytingar á fjarskiptalögum. Björn hefur þegar gengið innflytjendum í stórabróðursstað en nú ætlar hann að söðla um sig og hreppa titilinn: þjóðarbróðir.

Í drögum að væntanlegu frumvarpi kemur fram að alla farsíma skuli skrá með nafni notanda. Það er í sjálfu sér ekki hræðilegt, þó að ég hefði sjálfur kosið gamla mátann. Hann nýtist erlendu ferðafólki vel þar sem enga pappíra þarf að útfylla o.s.frv. Það sem er verra er að Björn vill að fjarskiptafyrirtæki haldi skrár yfir farsímanotkun og netnotkun ár aftur í tímann.

Upplýsingar á borð við þessar eru auðvitað viðkvæmar og persónulegar. Það að geyma uppl. í ár frekar en hálft ár, eins og gert er í dag, er skref sem á að taka vegna þess að í dag er minni orðið mun ódýrara en þegar hálfs-árs-reglan var lögleidd. Upplýsingarnar eiga að gagnast lögreglu við rannsókn mála, einkum fíkniefnabrota.

Eftir 10 ár má gera ráð fyrir að minni í tölvur verði orðið mun miklu ódýrara en það er nú þegar. Þá verður kannski lítið mál fyrir fjarskiptafyrirtæki að geyma fjarskiptaupplýsingar í 10-20 ár. Eigum við þá að gera það bara af því að það er hægt? Auðvitað ekki enda kemur engum við í hvern ég hringi og hvað ég segi við hann, hverjum ég sendi tölvupóst og hvaða dónalega efni ég skoða á netinu.

Rökstuðningur þessarar persónufrelsisskerðingar er það að þetta gæti auðveldað rannsókn sakamála, einkum fíkniefnabrota. Eru fíkniefni slíkt vandamál í samfélaginu að það sé þess virði að fórna svo stórum hluta af persónufrelsi okkar?

Björn Bjarnason hefur löngum verið repúblíkani okkar Íslendinga. Hann vill verja okkur gegn hugsandi og óhugsandi hryðjuverkum, gegn árásum óvinveittra þjóða (Svíar og Perúbúar efstir þar á lista) og nú vill hann verja okkur gegn fíkniefnadjöflinum. Björn vill hins vegar ekki verja okkur gegn ósanngjörnum rannsóknum án nægilegs rökstuðnings og persónuupplýsingasöfnun stjórnvalda.

Björn ver Ísland ekki gegn sjálfum sér!

Björn hlýtur því nafnbótinu stóriþjóðarbróðir um leið og frumvarpið verður kynnt.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Bjössi er bara að undirbúa jarðveginn fyrir mig áður en ég verð einræðisherra. Það er nefnilega gott að gott að regluverkið verði tilbúið svo hægt verði að hafa eftirlit með almúganum. Komið sé í veg fyrir að það sé grafið undan valdi mínu.
KV. Hlynur sem á stóran bróðir

8:11 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

Já, almúginn getur vissulega verið til trafala. Þess vegna mæli ég með því að þeir sem eru ósáttir við almúgann flytji á einhverja óbyggða kyrrahafseyju. Þar geta þeir haft eftirlit með hverjum kjafti.

3:26 AM  

Post a Comment

<< Home