Thursday, March 17, 2005

Fréttatilkynning borgarstjóra

Í dag var blásið til blaðamannafundar með borgarstýru þar sem hún tilkynnti að á næstu þremur árum eigi að afnema leikskólagjöld á leikskólum borgarinnar. Þetta á að gerast í nokkrum skrefum, og hefur fyrsta skrefið reyndar þegar verið tekið, þ.e. fimm ára börn fá 3 tíma fría á dag.

Þetta er auðvitað mikið hagsmunamál foreldra og þessu fagnar Jósef. Hann er þó ævinlega tortrygginn gagnvart borgaryfirvöldum og því vil ég hvetja fólk til að vista fréttatilkynninguna með því að hægrismella og velja save as... Ef ekki verður staðið við þessi loforð má telja öruggt að til mótmæla komi af hálfu foreldra og þá er ekki verra að geta rýnt í fréttatilkynninguna og standa svo fyrir málefnalegum mótmælum með sönnum tilvísunum í orð borgarstjóra.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Jíha! Þá græðum við á barninu.

9:04 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

Já, passaðu þig bara að detta ekki úr æfingu, því að ég ætla að græða meira.

11:03 PM  

Post a Comment

<< Home