Monday, March 14, 2005

Krónan kostar minna... í orði en ekki á borði

Þrátt fyrir að ísskápurinn minn oftast hættulega vannærður þá hefur hann ekki verið það síðustu daga. Ísskápurinn hefur, eins og aðrir íslendingar í þéttbýli, fengið að njóta verðstríðs lágvöruverslana. Það þykja því varla tíðindi að ég hafi skroppið út að versla í dag. Eitt var þó óvenjulegt við þessa verslunarferð: Ég ákvað að fara í Krónuna. Þetta gerði ég svo að stuðningur minn einskorðaðist ekki við Bónus. Ég ákvað að vera athugull neytandi sem vissi að samkeppni geti aðeins verið ef við rífum okkur úr viðjum vanans og verslum við fleiri en einn aðila. Það er skemmst frá því að segja að þetta voru mistök.

Svo virðist sem lýst hafi verið yfir vopnahléi í þessu stríði. Áróðursmaskínan segir þó annað. Sumar vörur voru enn á stríðsprís, þ.á.m. Kea skyr. Eins og margir vita hef ég sérstakar taugar til þeirrar ágætu neysluvöru, enda hefur framleiðsla hennar markvisst bundið enda á vorgeðhæðina og skapað sumarþunglyndið. Ég lít því á verðmiða og sé að vanilluskyr kostar kr. 52 og jarðarberjaskyr kostar kr. 45. Þetta tel ég ágætisverð og skelli því nokkrum dósum í körfuna.

Þegar að kassanum kemur sé ég að ég er fórnarlamb áróðursmaskínu Kaupáss. Skyrið kostar í raun kr. 72. Ég sé að það er ekki þess virði að ræða við bólugrafna unglinginn á kassanum (einkunn af því að ég er sjálfur bólugrafinn unglingur) og fer því út nokkrum krónutugum fátækari.

Það sem stendur þó eftir er að ég hef margoft farið í Bónus á stríðstímum og aldrei rekið augun í yfirhylmingar á réttu verði. Því mæli ég eindregið með að krónan verði sniðgengin í framtíðinni fyrir að nota þessar Napalm-sprengjur lágvöruverslanaviðskipta.

Ef einhver annar hefur orðið var við sambærileg dæmi, hvort sem er í Krónunni eða annars staðar þætti mér gaman að fá að heyra af því.

3 Comments:

Blogger Árni Gunnar said...

Ekki batna málin. Nú er mér sagt að það hafi verið minnst á sama eða sambærilegt ósamræmi Krónunnar í blöðum helgarinnar. Samt láta þessir ribbaldar ekki segjast og halda áfram að svindla á neytendum.

6:15 PM  
Anonymous Anonymous said...

Þetta er ekki gott að heyra, það er samt nauðsynlegt að fara jafnt a báða stað til að halda þeim á tánum.
Samt er gef ég ekki mikið fyrir þessar viðskiftaaðferðir Krónunar. Árni þú átt að fá þetta á á mertu verði sem er í búðiðinni, það voru mistök hjá þer að nýta ekki þann rétt þinn.

10:55 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

Auðvitað eru það alltaf mistök að láta taka analskt, enda getur það valdið heilsutjóni sé maður ekki vel undirbúinn.

12:07 PM  

Post a Comment

<< Home