Friday, February 25, 2005

Vík, höfuðstaður heilsunnar

Ef eitthvað er að marka sögubækur námsgagnastofnunar nam karlmaður nokkur land innst í Faxaflóa fyrir 1131 ári síðan. Nefndi hann þennan stað Reykjavík vegna þess að reykur steig upp af jörðu. Í dag sést þessi reykur ekki lengur, enda er búið að beisla hann m.a. til húshitunar. Eini reykurinn sem ég tek sérstaklega eftir er reykurinn á kaffibarnum og ámóta skemmum þar sem ég kem til að drekka kaffi og lesa bækur.

Reykurinn á kaffibarnum á nú einnig undir högg að sækja. Það á ekki að beisla hann heldur útrýma honum. Það er hin elskulega fyrrverandi umhverfisráðfrú, Sif Friðleifsdóttir, sem er fyrsti flutningsmaður að frumvarpi sem útrýma á þessum reyk. Flestir þekkja megindrætti þessa frumvarps ágætlega og ætla ég ekki að hafa fleiri orð um það sérstaklega.

Í dag eru landslög þannig að helmingur allra veitingahúsa skal vera reyklaus. Í tilviki hinna raunverulegu veitingahúsa er mín reynsla að þessu sé ágætlega framfylgt. Þessi fáu skipti sem ég fer út að borða er ég ævinlega spurður:,,reyk eða reyklaust?" og aldrei lendi í ég því að reyklausir trufli mig ef ég er reykmegin eða að reykingamenn trufli mig á reyklausa svæðinu.
Aðra sögu er að segja af börum og skemmtistöðum. Þar eru þessi lög nánast hvergi virt (a.m.k. ekki á þeim stöðum sem ég stíg fæti inn á). Sumir álíta þetta eflaust vera mikið vandamál og þeir fá mína samúð.

Nú á að setja ný lög: algert bann, án þess að gerðar hafi verið tilraunir til að framfylgja nýlegum lögum um reyklaus svæði. Einhver snillingur sagði í útvarpinu í morgun að einu sinni á ári væri börum, skemmtistöðum og veitingahúsum sent viðvörunarbréf. Ekki hef ég fengið staðfest hvort þetta sé rétt en hvernig í ósköpunum ætti þetta að leysa vandann. Af hverju eru eigendur þessara fyrirtækja ekki bara sektaðir?

Ég er sannfærður um að fjársektir, séu þær tilfinnanlega háar gætu komið í veg fyrir lagabrot af þessu tagi. Það hlýtur að vera hægt að komast að skynsamlegri niðurstöðu sem ekki þarf að bitna á veitinga- og reykingafólki. Auk þess hefur reyklausum kaffi- og veitingahúsum fjölgað mikið síðustu ár og ekki sé ég þau troðfull af reyklausu fólki flýjandi hin reykfylltu kaffihús. Það er nóg af plássi fyrir reyklausa til að velja!

Almenn óþægindi af reyk er ekki eina röksemdin fyrir reykingabanni. Það er vinsælt að nefna starfsfólk og hagsmuni þeirra í reykingabannsumræðunni. Er virkilega svo komið fyrir okkur að við getum ekki valið það sjálf hvort við séum tilbúin að vinna í reyk eða ekki? Gerum við okkur ekki grein fyrir því að einhver hætta er af óbeinum reykingum? Og ég endurtek hættan af óbeinum reykingum er einhver, hún er augljóslega ekki gríðarlega eða stórhættuleg. Ef svo væri hefðu þeir vísindamenn sem rannsakað hafa þessa hættu að sjálfsögðu fengið óyggjandi gögn sem benda til meintrar hættu. En þær niðurstöður hafa ekki fengist. Margir segjast vissir um að hættan sé mikil, en það hafi bara ekki tekist að sanna hana. Af hverju var svona miklu auðveldara að sanna hættu beinna reykinga? Jú, af því að þar er hægt að vinna með stóran hóp fólks sem hefur veikst, og jafnvel fallið, vegna reykinga. Hópurinn sem hefur lent í hremmingum vegna óbeinna reykinga er lítill og ógreinilegur.

Hættan er þó fyrir hendi. Það er viss um. Er þá ekki bara hægt að láta fólk sem kýs að vinna á reykfylltum veitingahúsum vita af hættunni? Biðja það að skrifa undir plagg þar sem stendur: Ég samþykki... Ekki held ég að erfiðara væri fyrir veitingamenn að ráða til sín starfsfólk þó svo að slíkt plagg fylgdi ráðningasamningi.

Það er þegar til ein Vík á Íslandi. Hún er í Mýrdal. Við skulum ekki breyta höfuðstað Íslands í Vík við Faxaflóa. Höldum í reykinn, útskúfum ekki fólki og köllum hana fröken Reykjavík.

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

pældi samt í hversu mikið vesen það yrði að reyna að sannfæra blindfullt fólk á skemmtistöðum að hvar reyklausa svæðið væri á viðkomandi stað!og bara hversu mörgum væri skítsama hvar þetta blessaða svæði væri, og reykja bara þar sem að þeir vilja!ég get ekki séð hvernig hægt sé að ná sátt milli reykingarfólks og hinna "heilbrigðu" á skemmtistöðum. Annað hvort algert bann eða bara leyfa þetta.

3:13 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

En af hverju voru þessi lög frá 199x sett, ef ekki átti að framfylgja þeim? Og hver segir að nýjum lögum verði frekar framfylgt?

5:20 PM  
Blogger Guðmundur Már said...

Það er nú spurning hvort þetta endi ekki með því að einhver sem telur sig ílla farinn eftir óbeinar reykingar kærir einhvern skemmtistaðinn.

Það er alveg spurning hvort sá maður hefði ekki eitthvað til sýns máls, sérstaklega ef hann er búinn að borga sig inn á staðinn.

Efast ég um að sá myndi vinna málið en þetta gæti ýtt við mörgum staðnum.

11:41 PM  
Anonymous Anonymous said...

Viðkomandi hefði alltaf haft val um það hvort hann notfærði sér þjónustu á veitingahúsi/bar/skemmtistað og því væri erfitt fyrir hann að leggja fram kæru. Einnig væri ómögulegt fyrir hann að sanna að það væri einmitt vegna reyksins á þessum tiltekna stað sem hann hefði veikst.

Kannski mætti leysa slíkt með því að setja skilti utan á reykstaði: Varúð, hér fara fram beinar og óbeinar reykingar! og svo í smáletrið: sem munu eða munu ekki valda þér lífshættulegum skaða.

2:42 PM  

Post a Comment

<< Home