Mikki refur og tíðindin úr Hálsaskógi
Hvernig er hægt að segja að það að birta þjóðerni morðingja í fjölmiðlum leiði ekki til fordóma? Frægasti lýðskrumari okkar Íslendinga í dag sagði þetta í viðtali á talstöðinni í dag. Sá er um ræðir heitir Mikael Torfason og þótti um tíma einn efnilegasti rithöfundur á landinu. Það var ekki ástæðulaust. Hann hefur verið verðlaunaður á norðurlöndum og hefur getið sér gott orð fyrir skarpan og hreinskilin ritstíl, auk þess sem hann hefur tekið harða siðferðilega afstöðu til hitamála í samfélaginu í bókum sínum.
Margir hafa eflaust haldið að þarna væri mikill hugsjónamaður á ferðinni, þar til hann féllst á að ritstýra DV og er ekki annað að sjá en að blaðið það versni eftir því sem líður á ritstjórnarferil Mikaels.
En það var sem sagt þannig að Mikael þótti ekkert sjálfsagðara en að birta þjóðerni morðingjans úr Kópavogi í fyrstu umfjöllun DV um málið, enda taldi hann nær óhugsandi að slíkt gæti ýtt undir fordóma. Það vill einmitt þannig til að Mikael tók kynþáttfordóma fyrir í bók sinni Samúel og virtist hann þá telja þá bæði slæma og óréttlætanlega. Þetta skiptir auðvitað engu máli því að Mikael veit að það að birta þjóðerni fólks í fréttum af morðingjum ýtir ekki undir fordóma samfélagsins.
En gæti verið að þessi mikli menntamaður og ritstjóri hefði nú einu sinni rangt fyrir sér? Við erum ekki bara að tala um eitthvað morð í Kópavoginum, ekki morð vegna afbrýðisemi, eiturlyfjaskulda eða nauðgunar. Morðið var heiðursmorð, þ.e.a.s. morð sem framið var vegna siðareglna frá landi morðingjans og fórnarlambsins. Ef slíkt heiðursmorð er framið hér á helga og örugga landinu okkar má telja víst að fólk verður hrætt við landa morðingjans, enda gætu þeir tekið upp á hinu sama ekki satt? Slíkar eru hefðirnar frá hans landi.
Sjálfur tel ég ólíklegt að mér verði slátrað á þennan hátt, eða að nokkur annar hljóti þau örlög á Íslandi næstu hundrað árin. En fólk verður hrætt og það verður hrætt við þjóðernið, kynþáttinn, jafnvel alla heimsálfu morðingjans. Slíkt er eðli fólks, það hræðist.
Nú ætla ég að geta mér til þess að Mikael og jafnvel flestir blaðamenn DV hafi mikla óbeit á bandarískum fjölmiðlarisum á borð við FOX, og þá einkum FOX News. Það hef ég líka. Sú óbeit hefur gerjast í mér í þau skipti sem ég horfi á þá ógeðfelldu sjónvarpsstöð vegna þess að hún elur nær eingöngu á ótta áhorfenda. Sýnir einungis morð, réttarhöld, vopnuð rán, farsóttir og hvað það er nú sem fólk kann að hræðast. Þetta er söluvara sem markaðurinn fyllist seint af. Óbeitin sem ég er að geta mér til um að Mikael og hans her á DV hafi óbeit á FOX einfaldlega vegna þess að þar stjórna haukfránir íhaldsmenn repúblíkanaflokksins og hann er andstæður stjórnmálaskoðunum ritstjórnar DV. DV-herinn baðar sig aftur á móti í reynslu FOX News af hræðsluáróðri, enda er ekkert í því blaði sem skiptir máli annað en hræðsluáróður. Þar eru vissulega innihaldslaus viðtöl, oft um 5 setningar hver, slúður tekið beint upp úr people o.fl. sem ég kýs að kalla drasl. Allt efni sem einhver vinna fer í snýst um hræðilegar líkamsárásir, hrikalegar svikamyllur, morð, nauðganir, barnaklám og auðvitað fylgja alltaf myndir með, áður en menn hafa verið dæmdir af til þess föllnum aðilum.
Við, þessi skrumaði lýður, getum þó huggað okkur við að í dag tekur fólk flestu með fyrirvara sem í þessu hasarblaði stendur. Það er þó viðurkennt sálfræðilegt vandamál fólk gleymir smáatriðum eftir því sem líður á en man aðalatriði, s.s. eftir myndum af meintum morðingjum. Því er algengt að fólk telji einhvern morðingja/nauðgara/svindlara þegar það sér einhvern af mynd í DV ganga úti á götu, þrátt fyrir að efni greinar sem birtist fyrir hálfu ári hafi verið lesin með gagnrýnum hætti. DV er hættulegt friðhelgi fólks í samfélagi okkar og mæli ég með algeru sniðgengi.
Jósef K.

2 Comments:
Varðandi Kópavogsmálið þá var ég búin að heyra það á sunnudeginum það þetta hafi verið innflytendur. DV er þá ekki komið út.Við þetta vakna spurnigar um hvort að það sé betra að láta kjaftasögur ganga þar sem hugsanlega 20 manns liggja undir grun eða bira staðreyndir til að vernda saklaust fólk fyrir því að verða dæmt kjaftasögum. Þú talar um drasl efni í blaðinu svo sem líkhamsárásir og annað ofbeldi. Því miður eru þetta hlutar af okkar samfélagi og tel ég ekkert óeðlilegt við að það sé fjallað um það í dagblaði. Held að Dv hafi bjargað mörgu fólki frá því að eiga viðskifti við einhverja svildara með umfjöllun sinni um þessar skuggahliðar.
En vissulega hefur DV farið yfir strikið í einnhverjum málum sem ber að harma.
Ok, þú varst búinn að heyra þetta á Sunnudeginum en á mánudeginum var þjóðerni mannsins birt. Hvaða máli skipti þjóðernið? Af hverju er það ekki bara maðurinn sjálfur sem skiptir máli og hvernig hjálpar það okkur að það hafi verið birt?
Líkamsárásir og ofbeldi eru vissulega hlutar af okkar samfélagi en greinar þar sem eymd eins fórnarlambs/geranda er dregin upp leggur voðalga lítið af mörkum, sérstaklega ekki þegar það er augljóslega keypt grein, þ.e. viðfanginu hefur verið borgað fyrir að koma í viðtal strax eftir að einhver æsilegur atburður hefur hent það.
Post a Comment
<< Home