Thursday, December 26, 2002

Hlutfallareikningur í Palestínu

Hér er frétt af mbl.is sem birtist þar á aðfangadag:

Barn lést í átökum á Gaza-svæðinu

Palestínskt barn lét lífið þegar ísraelskir hermenn hófu skothríð úr skriðdreka á norðanverðu Gaza-svæðinu í dag. Barnið lést þegar það varð fyrir sprengjuflís. Þá særðist einnig Palestínumaður þegar árásin var gerð í Jabalya-hverfi. Alls hafa 2.785 manns látið lífið í átökum Ísraela og Palestínumanna frá því uppreisn Palestínumanna hófst fyrir rúmum tveimur árum. Alls hafa 2.055 Palestínumenn fallið en 681 Ísraeli.

Fyrir talnaglöggva menn, eða fólk með reiknivél, segir þetta okkur að rúm 24% látinna eru Ísraelsmenn. Þetta skilur eftir 76% látinna Palestínumanna. Þrátt fyrir þetta eru það Palestínumenn sem eru hryðjuverkamenn en Ísraelar eru göfugir hermenn sem eru að verja land sitt. Eða að verja land annarra sem ætlunin er að verði land þeirra á endanum. Maður spyr sig, er líf Ísraelsmanna þrefalt verðmætara en líf Palestínumanna? Samt gengur það ekki upp því að þó að Ísraelsmenn hafi myrt þrefalt fleiri en Palestínumenn, þá eru þeir samt ekki hryðjuverkamenn. Þannig hlýtur Ísraelskt mannslíf að vera að lágmarki 5 sinnum verðmætara en líf Palestínumanns. Loksins er hægt að setja verðmiða á mannslíf. Í dag getum við þakkað Könum og Gyðingum fyrir að verðleggja þessa neysluvöru og koma í veg fyrir að við séum að versla lélega vöru næst þegar við skjótum einhvern fjölskyldumann í hausinn.

ÁGÁ

0 Comments:

Post a Comment

<< Home