Pyntingar hjá CIA
Það kemur fram í Washington Post að Talibanar og liðsmenn Al-Qaeda sæti pyntingum þar sem þeir sitja í fangelsi. Þetta vekur upp spurningar um það til hvers Genfarsáttmálinn var gerður. Var það svo að Bandaríkjamenn yrðu ekki pyntaðir ef njósnaaðgerðir þeirra mistækjust? Eða til að vernda hverskyns stríðsfanga sem hnepptir eru í varðhald á stríðstímum?
Bandaríkjamenn hafa reyndar sagt að það hafi ekki veirð stríð í Afganistan og því gangi Genfarsáttmálinn ekki í þessu tilviki. Það þarf þó enginn að segja mér að það hafi ekki verið stríð í Afganistan. Það sem vekur óhug er sú staðreynd að þeir sem þykjast leiðtogar hins frjálsa heims og veraldarlögregla, eru ekki skárri en KGB á hápunkti kaldastríðsins.
ÁGÁ

0 Comments:
Post a Comment
<< Home