Friday, December 20, 2002

Bandaríkjamenn og Bretar tyggja enn á sönnunum

Athyglisvert það sem kom fram í fréttum sjónvarps fyrir tveim mínútum. Því er þannig háttað að stórveldin tvö eru enn að stögglast á því að þeir hafi sannanir fyrir gjöreyðingavopnum í Írak. Þannig er einnig komið að í Írak eru vopnaeftirlitsmenn, undir forystu Hans Blix, að leita að vopnun alla daga. Í viðtali við Blix, sem sýnt var í fréttum RUV, segir hann að stórveldin segjast í sífellu hafa þessar sannanir. Hann segist hins vegar undrandi yfir því að ekki sé þá hægt að segja eftirlitsmönnum hvar vopnin eru. Þetta er athylisvert að heyra frá slíku mikilmenni, og verða efasemdirnar um réttmæti árásar sífellt meiri. Að sama skapi hlýtur sú kenning að þetta snúist einfaldlega um olíu Íraka að styrkjast í sessi. Hvernig er hægt að trúa mönnum sem segjast hafa sannanir en eru þó ekki tilbúnir að leggja þær fram. Seint telst það svo tilviljun að trúleysingjanum Saddam Hussein sé, af Bandaríkjamönnum, sagður besti vinur Bin Laden og aðstoði hann í heilögu stríði. Vissulega höfðu árásirnar á Bandríkin mikil áhrif á allt þjóðlíf þarlendis, en er ekki siðlaust að gera Saddam að blóraböggli sem afsökun fyrir því að stela olíunni af honum. Ég minni á að Saddam hefur verið ljúfur sem lamb, nánast alveg síðan í Persflóastríði.

ÁGÁ

0 Comments:

Post a Comment

<< Home