Laun æðstu embættismanna að hækka verulega!
Laun þegna landsins hækka samkvæmt kjarasamningum um 3%, um áramót. Laun æðstu embættismanna hækka þó um 7%, sem er eðlilegt hjá fólki sem skammtar sér sín eigin laun. Þó eru laun forseta Íslands hækkuð um sömu prósentu og laun annarra þegna, þ.e. um 3%. Þó eru það laun hans sem eru umtalsefni mitt að þessu sinni.
Forseti Íslands, 1.460.156 krónur
Forsætisráðherra, 729.938 krónur að meðtöldu þingfararkaupi en aðrir ráðherrar, 663.694 krónur að meðtöldu þingfararkaupi
Forseti Hæstaréttar, 528.705 krónur en aðrir hæstaréttardómarar 480.584 krónur.
Ríkissaksóknari 480.548 krónur
Ríkissáttasemjari 459.586 krónur
Biskup Íslands, 464.105 krónur
Dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, 440.713 krónur en aðrir dómstjórar 398.341 króna
Héraðsdómarar 384.342 krónur
Umboðsmaður barna 382.468 krónur
Þingfararkaup alþingismanna, 368.719 krónur
Þetta verða mánaðarlaun æðstu embættismanna okkar Íslendinga. Erum við tilbúin að borga þessar upphæðir?
Athygli vekur að við borgum forseta Íslands 1.4 millj. á mánuði, fyrir að sækja veislur og skrifa undir lög. Ég get ekki séð að starf forseta feli í sér annað en að vera vel að sér um ýmis málefni, klæða sig vel, taka flestu með jafnaðargeði, gæta viss hlutleysis og fylgjast vel með fjölmiðlum. Þetta er svona u.þ.b. það sem góður fjölmiðlamaður þarf að gera, þ.e.a.s. fylgjast vel með og gæti einhvers hlutleysis. Þeir þurfa þó ekki að klæða sig vel eða sækja veislur en það er líka bara bónus forseta.
Hvernig væri að við myndum fá Illuga Jökulson í forseta stólinn. Hann er sélega vel að sér um málefni utanríkis sem innan, getur gætt hlutleysis og væri örugglega tilbúinn að fá töluvert lægri laun. X Illugi 2004.
Og hvernig er það réttlætanlegt að laun manna í ábyrgðarstöðum, s.s. ráðherrar, fá innan við helming launa forsetans, sem þarf þó ekkert að gera annað en að samþykja það sem ráðherrar skrifa. Ég er ekki að segja að ég sé voðalega hlyntur sitjandi ráðherrum en ands... þeir afkasta nú meiru en grísinn. Ég sé ráðherra heldur ekki fá frítt húsnæði, skrifstofu í einu flottasta húsi Þingholtanna eða lögreglufylgd á milli staða.
Staða forseta Íslands er hégómalegasta staða, ja, líklega í heiminum og batnar ekki við það að við skulum borga sautjánmilljónirfimmhundruðáttatíuogtvöþúsundáttahundruð- sjötíuogtvær isk. á ári fyrir að klippa á borða og sækja kokteilboð. Þetta er starf sem hvaða maður sem er, með 120 IQ, gæti sinnt.
Losnum við skrauthaukinn og látum sendiherrana kynna landið erlendis, það er nóg að þeir sæki kokteilboðin.
ÁGÁ
Heimildir um laun embættismanna fengnar á www.mbl.is

0 Comments:
Post a Comment
<< Home