Wednesday, December 18, 2002

Myndskreyttar viðbætur og framtíðin

Nú er svo komið að ég hef bætt verulega safn hlekkja, eða krækja ef þið viljið, á síðu þessa. Þetta eru að miklu leiti pólitískir hlekkir. Eins og sést bersýnilega á skrifum mínum er ég félagshyggjumaður, kannski krati ef út í það er farið, en læt það þó ekki hindra mig í að leið ykkur í hendur íhaldsins, eða jafnvel SUS-ara með hlekkjum þessum.
Endilega skoðið þessar síður, þær eru hver annari áhugaverðari.

Svo vil ég minna á að ég hef sett upp myndaalbúm þar sem sjá má marga frægustu menn mannkynssögunar. Þarna er að finna margar áhugaverðar myndir og af mörgum áhugaverðum mönnum, og hef ég brugðið á það ráð að birta reglulega stutta, sögulega pistla um þessa menn, enda eru þeir margir hverjir í miklu uppáhaldi hjá mér, hvort sem er, fyrir umbætur eða illvirki.

Fljótlega mun ég svo koma upp álitum við greinarnar, eða um leið og skítafyrirtækið HaloScan leyfir mér að notfæra mér fría þjónustu þess. Þá vona ég að þeir fáu sem lesa þessa síðu muni gagnrýna þessi skrif, sem annars eru yfir gagnrýni hafin.

Kv. Árni Gunnar

0 Comments:

Post a Comment

<< Home