Þjóðverjar fallast á að aðstoða Bush!
Nú er svo komið að Gerhard Schröder hefur samþykkt að aðstoða Bandaríkjamenn við árás á Írak. Eins og flestir muna, þá var Schröder andsnúinn árásum í kosningabaráttunni í Þýskalandi fyrir nokkrum mánuðum. Því telst það varla annað en hræsni og hentistefna hjá Schröder að samþykja aðstoð í dag. Hjá mér vaknar sú spurning hvort Bush og Schröder hafi verið búnir að ákveða þetta fyrirkosningar, en haldið því leyndu, þar sem Þjóðverjar eru í eðli sínu miklir hippar og ekki líklegir til að styðja árásina.
Það ber þó að taka það fram að aðstoð Þjóðverja felst í eftirliti með Bandarískum herstöðvum, ekki hjálp við sjálfan hernaðinn. Á textavap.is segir að Schröder vilji leggja fram 2.000 hermenn til gæslu herstöðva Bandaríkjahers í Þýskalandi. Því er ekki hægt að saka Schröder um algera undirgefni eða annan eins viðbjóð þannig að hræsnin er væntanlega í lágmarki á pólitískan mælikvarða. Fannst sam rétt að benda á þessa stefnubreytingu Schröders.
ÁGÁ

0 Comments:
Post a Comment
<< Home