Tuesday, December 17, 2002

Finnar utan NATO!

Finnska ríkisstjórnin var að gefa það út að þeir sæju enga ástæðu til að vera í NATO, sem væri stjórnað af Bandaríkjamönnum. Þeir telji að ríki Evrópusambandsins fyllilega hervædd, og þeir þurfi ekki að ganga í hernaðarsamtökin, þrátt fyrir að fyrrum austantjaldsríki gangi nú inn í sambandið í hrönnum. Ég vil óska Finnum til hamingju með þessa sjálfstæðu ákvörðun, sem sýnir greinilega að Finnar hafa ekki áhuga á að elta Kanann í vopnaskaki sínu. Eitthvað annað en við Íslendingar sem þykjumst hafa einhverjum skyldum að gegna í varnarmálum heimsins, og teljum okkur geta fengið betri verslunarsamninga með því að sleikja endaþarm stórveldanna í glórulausri baráttu þeirra fyrir olíu miðausturlanda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home