Tuesday, June 06, 2006

Framsóknarkostirnir

Aldrei hefði ég haldið að mér ætti eftir að koma það við að framsóknarflokkurinn væri í vandræðum. Nú þegar Halldór er hættur hefði maður haldið að von væri á betri tíð með blóm í haga. Það er þó alls ekki víst að svo verði. Ég sé fyrir mér tvo líklega kosti í formannssætið, og aðeins einn æskilegan.

Kostur nr. 1: Guðni Ágústsson verður formaður. Flokkurinn mun breytast lítillega en verður enn sama reikandi hóran. Guðni missir fljótt stuðning innan flokksins og enn verða vandræði hjá Framsókn.

Kostur nr. 2: Valgerður Sverrisdóttir verður formaður. Hún á eftir að ríða flokknum að fullu með hugsunar- og tillitsleysi. Hún mun trukka öll sín mál í gegn þar sem gríðarleg mótmæli verða í hvert skipti sem hún opnar munninn. Hennar eina von er sjálfstæðisflokkurinn fá svo góða kosningu að hann þurfi aðeins það auma fylgi sem eftir verður hjá Framsókn næsta vor. Þannig gæti hún komið sjálfri sér í valdastól og drepið Framsóknarflokkinn hægt og rólega innan frá á kjörtímabilinu. Framsóknarflokkurinn býður ekki fram í kosningum 2011. Hvíl í friði X-B.




Kostur nr. 3: Jónína Bjartmarz verður formaður. Um hana myndast sátt innan flokksins og stefnubreyting verður. Nú verður flokkurinn stefnufastur, aldrei þessu vant, og kemst því ekki að í næstu ríkisstjórn. Undir forystu Jónínu mun flokkurinn standa sig vel í stjórnarandstöðu á næsta kjörtímabili og Sjálfstæðisflokkurinn verður tilbúinn að bjóða henni betri díl í kosningum 2011. Enn og aftur verður mynduð ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks.

Ábendingar um aðra, og vonandi betri, kosti eru vel þegnar.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home