Thursday, December 01, 2005

Biblían, óskeikult orð Drottins

Mér finnst afar áhugavert að heyra menn tala um biblíuna og að hún sé óskeikul. Íslensk biblía er t.d. þýdd upp úr latínu. Fyrsta biblían var Guðbrandsbiblía og kom hún út árið 1584. Síðan hefur hún komið út í nokkrum nýjum þýðingum. Eru þýðingar biblíunnar líka óskeikular? Er fólkið sem þýðir þær óskeikult, og ef svo er, hví þarf þá að þýða hana oftar en einu sinni? Sumir kunna vissulega að lesa þau tungumál sem handritin sem mynda biblíuna eru skrifuð á, en það eru afar fáir. Samt fáum við að heyra þetta aftur og aftur frá kirkjunnar mönnum ,,Ég trúi því að orð Guðs sé óskeikult.” Þá trúa þessir menn því að orðið sé óskeikult þrátt fyrir að því hafi oft verið breytt. Og ef þurft hefur að breyta því er það sjálfkrafa orðið skeikult, ekki satt. Það sem er fullkomið og óskeikult getur varla þurft á breytingum að halda.

Allavega er þetta mjög undarleg staðhæfing miðað við að íslenskir guðfræðingar læra hvorki Aramísku né hebresku. Þeir læra grísku og latínu. Þá eru þeir ekki hæfir til að lesa orð Guðs í sinni skýrustu mynd.



Það eru einnig margir sem hafa í gegnum tíðina viljað meina að Guð sé fullkominn í alla staði, hann er fyrirmynd fullkomnunar (sem er reyndar stolið úr ríki Platóns).

Þeir sem hafa lesið Bók Jóbs (er ekki viss hvort sé ó í nafni Jób þar sem ég hef aðeins lesið hana á útlensku) er Guð hins vegar allt annað en fullkominn. Hann er uppstökkur og auðeggjanlegur, beiskur og vondur. Hann þolir ekki stælana í Lúsífer og níðist á sínum dyggasta stuðningsmanni vegna eigin hégóma. Hann skal sko sýna djöflinum að Guð hefur rétt fyrir sér.

Þessi bók biblíunnar er afar illa skrifuð. Hún sýnir mjög mannlega eiginleika í Guði, en trúin á Yahwe eða Jehóva gengur einmitt að svo miklu leyti út á að halda aftur af mennskum eiginleikum á borð við hégóma, afbrýði, stolti og gorti. Trúin boðar visst siðferði sem á að halda samfélaginu í skefjum og tryggja þannig yfirburði samfélags trúaðra fram yfir samfélög ,,villutrúarmann.” Bók Jóbs er eitt af besta dæmi þess að orð Guðs er orð manns sem ekki hafði skilning á fullkomnun og um leið og Guð er ekki fullkominn verður orð hans skeikult og aðeins leiðbeinandi siðfræði fremur en trúarbrögð hins blinda og dyggðuga.

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

var ekki nýjatestamentið skrifað á grísku...annars bara villtist ég hingað inn og datt í hug að segja hæ, góðir þankar.

11:54 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

Kórrétt hjá þér. Nýja testamentið var skrifað á grísku, þannig að guðfræðingarnir geta vissulega lesið það. En þá kemur upp annar vandi. Guðfræðingar eru að mínu mati síst merkilegra fólk en aðrir. Því geri ég ráð fyrir að guðfræðingar allra landi hafi í gegnum tíðina verið að lesa og túlka nýja testamentið þrátt fyrir afar mismunandi hæfileika í forn-grísku. Ætli það hafi endilega verið túlkanir sterkustu tungumálamannanna sem hafa orðið ofan á í baráttunni? Ég leyfi mér að efast um það. Bestu ræðumennirnir, og þeir sem hafa haft pólitískra hagsmuna að gæta hafa auðvitað troðið sínum túlkunum til fjöldans.

9:50 AM  
Anonymous Anonymous said...

afskaplega sammála þessu, argaþras og hagsmunapot rýrir hvað sem er trúverðugleika, trúarbrögð ekkert síður en hvað annað...

1:39 PM  
Anonymous Anonymous said...

djöfull leiðist mér þegar maður neyðist til að setjast við lærdóm á "kaffistofborðin" í odda vegna plássleysis, og svo kemur feitt og ljótt fólk og fer að hita viðurdtyggilega lyktandi 1944 kjötkássur og fer svo að smjatta á þessu í botnlausri og óskiljanlegri, ófyrirgefanlegri græðgi, líkt og um það að taka þátt í kókosbolluátkeppni í SPK. já og fín grein, sammála

3:23 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

Já, það er ömurlegt. Getur fólk ekki borðað heima hjá sér. Ófyrirgefanlegt að kaffistofan þurfi að vera ,,venue" fyrir slíka óviðeigandi hegðun.

3:48 PM  
Anonymous Anonymous said...

af hverju er biblían þér hugleikin? ég held að áhrif trúarbragða séu almennt ofmetin í heiminum. er ekki biblían bara sæmilegasta skáldverk, miðað við aldur?

4:36 PM  

Post a Comment

<< Home