Spurning til lesenda
Ath. viðbót neðan við upprunalegan texta
Í gær var banaslys skammt frá Akureyri. Maður keyrði útaf og lést. Það þykir mér afar leitt. Ég þekkti þó ekki manninn.
Þessi atburður fékk töluvert mikla umfjöllun á NFS í gær. Ég veit ekki hvort aðrir fjölmiðlar hafi fjallað um málið jafn mikið og á sama hátt, ég hef ekki kynnt mér það.
Á NFS kom fram að ekki væri hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. Það er eðlilegt, hugsanlega hafa ekki allir nákomnir manninum fengið fréttirnar ennþá og ekki rétt að þeir heyri þær í sjónvarpi eða útvarpi.
Það var einnig sagt að maðurinn hafi verið 38 ára. Það er kannski allt í lagi. Það eru ansi margir 38 ára menn á Íslandi og jafnvel Akureyri. Þeir sem hefðu annars haft áhyggjur af mönnum sínum, sonum og frændum gátu þá varpað öndinni léttar ef þeir voru ekki 38 ára gamlir.
Að lokum kemur svo fram að maðurinn hafi verið einhleypur og skilji eftir sig 3 börn. Til hvers í ósköpunum þarf að segja frá því? Úr því að ekki mátti greina frá nafninu verður lítið hægt að gera með þessar upplýsingar... eða hvað? Þessar upplýsingar gera það að verkum að allir einhleypir 38 ára menn liggja undir grun, þeir eru grunaðir um að hafa látist í slysinu. Allir sem kannast við einhvern 38 ára einhleypan þriggja barna faðir hugsa að þarna sé líklega um viðkomandi að ræða. Þessi grunur manna kemur svo af stað kjaftasögum sem ævinlega ganga manna í milli fyrstu klukkustundirnar eftir slík slys. Þannig gæti náskyldur ættingi hins látna komist að því í gegnum kjaftasögur sem komust á kreik vegna þess að fréttastofa taldi þessar upplýsingar þurfa að fylgja fréttinni. Þetta finnst mér siðlaust og ég sé aðeins einn mögulegan tilgang með slíkum fréttaflutningi.
Tilgangurinn hlýtur að vera sá að halda sem flestum á tánum, því að þó svo að það sé bara hugsanlega einhver kunningi minn sem ég vann með í viku fyrir 6 árum síðan eða gekk í sama skóla og ég fyrir 12 árum þá vil ég vita hvort það sé viðkomandi sem lést í slysinu sem verið er að flytja fréttir af. Því sýnast mér upplýsingar á borð við þessar vera til þess fallnar að halda sem flestum á tánum, fá alla til að fylgjast með fréttatímum þar til nafn hins látna hefur verið opinberað eða þar til að maður fær andlátið staðfest á annan hátt.
Ef einhver sér réttmæta ástæðu fyrir birtingu slíkra upplýsinga má hann endilega upplýsa mig.
Þetta er greinilega eitthvað sem fólk tekur eftir og enginn hefur enn fundið að tilgangur geti verið í slíkum fréttaflutningi. Eins og fram kemur í greininni sá ég ekki flutning annarra miðla um málið en úr því að lesendur ákváðu að nota tækifærið og berja á Baugsmiðlunum ákvað ég að kanna málið.
Eins og Guðríður segir þá birti Mbl myndir af flaki bílsins, sem er mjög auðþekkjanlegur, enda ekki margir sem aka um á stórum BMW bifreiðum á norðurlandi. Ég kíkti svo á fréttatíma RÚV og þar koma nákvæmlega sömu upplýsingar fram og hjá NFS auk þess sem bíllinn er sýndur mjög greinilega.
Siðleysið einkennist því ekki við Baugsmiðlana heldur er það almennt á íslenskum fjölmiðlamarkaði.

6 Comments:
það eru hálvitar sem stjórna 365 miðlum! ég hef sönnun fyrir þessu!
Engin heilvita maður myndi detta í hug að í 300.000 manna samfélagi sé nauðsynleg þörf á að hafa "sér" fréttastöð!!Fjölmiðlar þessa lands eru á hraðri niðurleið. Þess má geta að heimili mitt er algerlega 365 laust og er það eingöngu vegna þess hve standard þess á fréttum hefur farið til helvítis ( og það að pabbi minn er harður sjálfstæðismaður)
pass.
Líka þegar er sagt "ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu" og svo er bara close-up af bílnum úti í móa...
Ég er ekki sammála "Kristjáni" sem segir að það séu hálfvitar sem að stjórna 365.. því það er vitað mál að þetta eru allt saman úrhrök og hrægammar algerlega því óviðkomandi hvar eða hvaða fjölmiðli þeir stjórna. DV NFS STÖÐ2 eða hvað þetta nú allt heitir eru allt saman fólk sem ég set á sama level.. eða eins neðarlega og hægt er að setja það.. þetta fólk þrífst á því að koma af stað leiðndum kjaftasögum og þess háttar sora. Svo lengi sem þeir gera mögulega eiðilagt eða svert mannorð einhvers þá eru þeir sáttir og komnir með "forsíðu frétt" og fæ ég það eingan vegin skilið hvernig svona fólk getur lifað í sátt við sjálft sig. Hvað fær manneskju til að geta haft það að atvinnu sinni eða níða náungann.
en svona svo ég komi kanski aðeins inn á þessa frétt sem Árni talar um þá fannst mér merkilegast við þennann fréttafluttning það að á meðan málið er nánast eins ferskt og það getur orðið og ekki búið að rannsaka eitt né annað að þá þurfa þeir að segja næstum orðrétt "ekki er óvíst að ökumaður bifreiðarinnar hafi verið undir áhrifum áfengis, en ekki er hægt að fullyrða það heldur að svo stöddu" það hefði allt eins verið hægt að segja " Ökumaður bílsinns gæti hafa verið geimvera en við getum ekki staðfest það að svo stöddu" er þetta ekki bara eithvað sem mæti sleppa að segja og bíða með það að vera með svona getgátur. þetta er gert einungis til að koma af stað kjaftasögum.
ég held að þetta sé orðið ágætis komment hjá mér í augnablikinu.. :) en það er bara eithvað sem fær mann gersamlega til að tapa sér þegar þessi sora frétta skapur á sér stað.. sem gerist því miður í hverjum fréttatíma og hverju einasta dagblaði.
Fyrir fólk eins og t.d mig sem þekkti viðkomandi fórnarlamb umferðarinnar þá þykir mér þessi fréttaflutningur vera arfaslakur, en ekki er þetta í fyrsta skipti sem ég hef þurft að vera hundfúll og mjög sár út í fréttastofu stöðvar 2 vegna fréttaflutnings þeirra . Sú frétt kom einmitt að andláti fólks sem einmitt voru fórnarlömb umferðarinnar, sem var mér mjög nákomið....í því tilviki var það var bara eintóm heppni að ég var ekki að horfa á sjónvarpið er þeir birtu myndir af bílflaki móður minnar, því ekki hafði ég hugmynd um hvað hefði komið fyrir.... Þeim er alveg sama um allt og alla. Það er bara hugsað um að reyna að gera þetta krassandi og reynt að fá áhorf. Svona svipað og DV gengur mjög vel með... Því miður getur maður lítið gert í þessu nema taka það í rassgatið endalaust og láta það viðgangast aftur og aftur....
alveg fullkomlega sammála, sá einmitt mynd á mbl.is af bílnum, ef að kalla mátti bíl enþá, af hverju í andskotanum þurfti að setja þessa mynd með... mér finnst þetta og það sem þú árni talar um það mest anstyggislegasta sem að fréttamiðlar geta gert aðstandendum fólksins á svona stundu...
Ég held að NFS sé bara komið til að fara. Til þess að halda uppi svona fréttastöð þarf hreinlega að "búa til" fréttirnar og það er það sem þeir eru að gera.
Post a Comment
<< Home