Wednesday, November 30, 2005

Stutt um afhelgun Íslands

Því hefur verið haldið á lofti af mörgum í almennri umræðu að Ísland sé svo gott. Það eru allir svo öryggir á Íslandi. Allir eru góðir, allt er hreint og engin er spillingin. Þetta er sem betur fer á undanhaldi, enda hlýtur svona blind dýrkun á einhverju sem ekki er til að tefja fyrir framförum og að tekið sé á vandamálum.




Undanfarin ár hefur ýmislegt gerst sem grefur undan þessu. Má þar nefna:

Samráð olíufélagana sem sviku af þjóðinni marga milljarða (engin spilling?)

Stóriðjustefnu stjórnvalda sem á hugsanlega eftir að gera Faxaflóasvæðið að einu því mengaðasta í Evrópu (allt hreint?)

Fjölmörg morð sem tengjast eiturlyfjamisnotkun og slæmri aðstöðu geðsjúkra (allir öryggir?)

Undanfarið hefur svo verið afar áberandi hvað Íslendingar hafa lært um leið og þeir urðu nýríkir. Þeir hafa lært að eyða peningum illa og sömuleiðis að koma illa fram við undirmenn sýna. Íslendingar hafa lært að það er auðvelt að gefa skít í útlenska aumingja sem eru ráðnir hingað til fyrirheitna landsins í vinnu sem er erfið og leiðinleg, til þess eins að bjarga fjölskyldu sinni frá örbirgð í heimalandinu. Vikulega berast fréttir af slíku svindli hjá starfsmannaleigum. Íslendingar eru ekki góðir, fallegir og fínir. Þeir eru nákvæmlega sömu andskotans hálfvitarnir og allir hinir í heiminum. Þeir hugsa um sjálfa sig, fyrst og fremst, og eru tilbúnir að loka augunum fyrir almennu siðferði á leiðinni að markmiðum sínum sem flest tengjast rafbúnaði, húsakosti og húsnæði. Um leið og fólk lærir að stunda viðskipti á heimsmælikvarða lærir það að svindla á sama kvarða. Íslendingar voru aldrei betri og saklausari en aðrir. Þeir kunnu bara ekki til verka.

1 Comments:

Blogger Árni Gunnar said...

Það má bæta því við að höfundur gerir ekki greinamun á húsakosti og húsnæði, þrátt fyrir að það komi klaufalega fram í greininni. Eitthvað hefur höndin farið fram úr hausnum...

1:02 AM  

Post a Comment

<< Home