Samkynhneigð fyrnist á 3 árum
Það er að frétta af nýjum leiðbeiningum frá Vatikaninu að samkynhneigð er ekki sama vandamál og margir hafa áður talið. Kirkjunar menn þar í landi hafa nú ákveðið að samkynhneigð fyrnist eins hvert annarð smábrot, t.d. skattsviki eða umferðarlagabrot. Þetta gerist á 3 árum og hafi menn ekki sýnt samkyns-hneigðir á því tímabili verða menn gjaldgengir til prestvígslu.

Það er auðvitað spurning hvort þessi regla gildi einnig um síbrotamenn. Væri t.d. hægt að fyrna Pál Óskar eða George Michael af brotum sýnum? Verður Sir Elton John nokkurn tíma gjaldgengur inn í prestastétt. Tíminn einn mun geta svarað því, en eitt er víst, það verður ekki fyrr en að 3 árum liðnum.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home