Sunday, November 20, 2005

Leikur að tölum

Það er áhugavert að heyra fjölmiðla segja frá skoðanakönnunum. Einkum á þetta við um ljósvakamiðlana, enda kasta þeir fram staðhæfingum af hinum og þessum breytingum á fylgi flokka sem oftar en ekki geta ekki staðist. Villan felst í því að fjölmiðlar geta ekki komið hugtökunum prósent og prósentustig rétt frá sér.

Ef við tölum um að flokkur hafi bætt við sig 20 prósent fylgi þýðir það að fylgi flokksins hefur verið margfaldað með 1,2.

Ef við tölum um að flokkur hafi bætt við sig 20 prósentustigum þýðir það að fylgið X% verður X+20%.

Í dag voru birtar niðurstöður könnunar fréttablaðsins á fylgi stjórnmálaflokkanna. Í greininni sem fjallar um þessar niðurstöður er ætíð notast við rétt hugtök. Sama fréttastofan getur aftur á móti ekki flutt fréttina rétt í útvarpinu. Þar eru hugtökin prósent og prósentustig notuð til skiptis og merkja sama hlutinn, þ.e. prósentustig. Það þykja mér afar leiðinleg mistök því að hugtakið prósentustig hefur verið búið til svo að greina megi á milli hugtakanna tveggja, en í munni fjölmiðla hefur það misst gildi sitt. Dæmi um hvernig flytja má fréttir á réttan, en undarlegan, hátt með notkun hugtakanna fylgir.

Fylgi framsóknarflokksins mælist nú 44% lægra en í kosningum 2003. Það er alveg satt. Eðlilegra, og skiljanlegra, væri þó að segja að fylgi framsóknarflokksins hafi dalað um 7,8 prósentustig. Í fyrra dæminu margfalda ég fylgi flokksins með 0,56 en í hinu seinna dreg ég 9,9 frá 17,7.

Sömuleiðis má segja að fylgi vinstri grænna hafi aukist um 106% en það segir okkur varla mikið. Að fylgið hafi aukist um 9,4 prósentustig gefur mun betri mynda af niðurstöðunum.

Með þessum sífelldu villum ljósvakamiðlanna er verið að fella gildi hugtaks, líkt og þegar einhver snillingurinn ákvað að helmingi meira væri það sama og tvöfalt meira. Helmingi meira getur rökfræðilega aðeins verið eins stærð, þ.e. x + 0,5x. Þá hef ég tekið helminginn af x og bætt honum x sem gerir helmingi meira. Nú get ég hins vegar ekki sagt helmingi meira lengur því að fjölmiðlar hafa breytt þessari stærð í 2x og ef ég nota rétta merkingu hugtaksins er ég misskilinn af hluta áheyrenda. Þetta finnst mér afar fúlt.

Ludwig Wittgenstein sagði einhverju sinni að merking orðs væri notkun þess í tungumálinu. Það er í sjálfu sér rétt. Sá skilningur sem meirihluti manna leggur í orð hlýtur að vera megin merking þess. En þegar orð er í rökfræðilegri andstöðu við sjálft sig hljótum við að viðurkenna fyrir okkur sjálfum að við séum á villigötum.

Eftir þennan þurra og leiðinlega lestur veitir lesendum ekki af enn einum glaðningnum og fylgir hann því á eftir.

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ánægður með nýjungar í skrýtluformi og til hamingju með glæsilegt útlit. Já og svo er útlit síðunnar líka flott...

Helgi

2:10 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

Það er gott að heyra. Þú ert nú ekki síður glæsilegur maður.

2:35 PM  
Blogger Árni Gunnar said...

Það er gott að heyra. Þú ert nú ekki síður glæsilegur maður.

2:35 PM  
Anonymous Anonymous said...

Bleah

1:23 PM  
Anonymous Anonymous said...

Það er satt, þetta er ömurlega algengt. Einnig notað í auglýsingum t.d."Þú færð helmingi stærri e-ð í vinning" Gott hjá þér að koma þessu á framfæri

10:08 PM  

Post a Comment

<< Home