Monday, November 28, 2005

Avion group og afbragðs tónleikar

Alveg finnst mér magnað að sjá þegar annað framsæknasta fyrirtæki Evrópu, Avion group auglýsir að það sé annað framsæknasta fyrirtæki í Evrópu. Þá er mikil dramatík með vönduðum, mikið unnum, myndum af starfsemi ýmissa dótturfyrirtækja sem sýnir guðdómlega yfirburði þessa félags. Undir er svo spiluð tónlist sem er á löglegan en siðlausan hátt stolið frá hinni ágætu hljómsveit sigur rós. Um er að ræða bjögun á nýlegu lagi sigur rósar, hoppípolla.

Það þætti manni undarlegt ef efnaður maður á borð við Jón Ásgeir Jóhannesson sæist stela í Nóatúni. Í þessu tilviki hefur Avion group stolið þessu lagi þrátt fyrir það gríðarlega fjárhagslega bolmagn sem félagið hefur. Ég geri ráð fyrir að sigur rós hafi ekki viljað selja lagið í auglýsinguna, en andskotinn, maður býr ekki til sýna eigin útgáfu heldur finnur annað lag. Ég er því hættur að versla við Avion, sem ég hef reyndar aðeins gert einu sinni, en þá flutti ég búslóð með Eimskipum. Héðan í frá er fyrirtækið a.m.k. komið á minn lista og vænti ég að lesendur geri hið sama.


Það er af tónleikum sigur rósar í gærkvöldi að segja að þeir voru að öllu leyti magnaðir.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Sigur rós er leiðinlegasta band sem er til, tæki undir með þér með að boycotta Avion Group ef þeir hefðu stolið frá e-m öðrum en þeim. Eða jú, ég ætlað boycotta þá fyrir að leggjast svona lágt og stela algjörlega worthless viðbjóði

1:20 PM  
Anonymous Anonymous said...

æi einn bitur kallinn minn....
hel.... Avion group að gerast svona siðlausir.......

2:50 PM  

Post a Comment

<< Home