Monday, October 17, 2005

Ógeðfelld aðför hjá methöfum í afgangi

Danir eru um þessar mundir að tilkynna mesta afgang af ríkissjóði sem nokkur Evrópusambandsþjóð hefur skilað. Um leið eru þessir sömu Danir að sýna mjög ósmekklegan áhuga á fólki sem er svo óheppið að hafa fæðst inn í vitlausa fjölskyldu.

Kl. 10:20 í dag, mánudag voru þetta mest lesnu fréttirnar á Politiken.dk:

Mest læste nu

1. Den nye kronprins får to djævle fra Tasmanien

2. Lilleprinsen har fået sit første køretøj

3. Omstridte tegnere føler sig misforstået

4. Den kongelige familie er stadig på Riget

5. Mary bør være hjemmegående husmor

Hér er að finna sakleysislegar fréttir á borð við hvers konar barnavagn hinn nýfæddi krónprins mun nota og að Tasmaníuskollar verði fluttur til Danmerkur vegna fæðingar prinsins. Öllu ósmekklegri eru fréttir af því að Mary Donaldson skuli kjósa að liggja áfram á sjúkrahúsi og ennfremur að hún skuli aðeins ætla að taka stutt frí frá opinberum skyldum sínum. Hvað varðar borgara í Danmörku um fæðingarorlof þessarar konu? Nákvæmlega ekkert. Hún á rétt á orlofi og hún á rétt á að hafa það stutt eða langt. Það sem er svo ósmekklegt við þetta er að Danir telja sig hafa rétt á að skipta sér af nýfæddu barni því að þeir telja sig eiga það. Prinsinn á eftir að verða konungur og þá EIGA Danir hann.

Ég veit ekki hvers konar líf það er þegar heil þjóð hefur eignað sér manneskju frá fyrsta degi lífsins. Það getur a.m.k. ekki verið þægilegt að hafa ekki bara foreldra sem skipta sér að, heldur einnig 5-6 milljónir vitleysinga sem maður hefur aldrei séð. Verður kannski þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvenær drengurinn hættir að nota snuð eða byrjar í leikskóla?

Lausnin á þessum ósmekklegu vandamálum er auðvitað að koma þessari fjölskyldu í Amalíuborg í alvöru vinnu og opna söfn í þessum höllum. Ég er hræddur um að konungsfjölskyldan yrði fljótt fegin að vera laus undan oki almúgans og almúginn ætti að fagna því að vera ekki minntur á sögulega kúgun konunga og presta.

3 Comments:

Blogger Árni Gunnar said...

Þess má geta að dagblaðið berlingske tidende býður upp á hámark lágkúrunnar, þ.e. krossapróf í vitneskju um fæðinguna. Ef það er nú orðið stöðutákn að vita sem mest um einkalíf annarra þá veit ég ekki hvert þetta stefnir...

11:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

jaja. Þetta er barnið okkar. var í vinnuni í gær og þá sagði félaginn, "við eignuðumst erfingja" jeg náttúrulega kom af fjöllum þar sem að ég var ekkert að eignast neitt og á ekki von á neinum erfingja og hvað þá með vinnufélaga mínum. síðan áttaði ég mig það var að fæðast barn í konga fjölskylduna. síðan í dag þá var verið að lýsa e-h svakalegu og ég var ekki allveg að skylja þetta, þá segir félaginn ja við getum séð barnið fyrst opinberlega núna. það var þá verið að tala við e-h konu sem var að skoða barnið lýsa því...... kanski var það bara í sjónvarpinu.

kv Guðni fréttaritari Árósum

6:05 PM  
Anonymous Anonymous said...

Frelsi, jafnrétti, bræðralag... með lágmarks afskiptum.
Geturðu útskýrt hvað þú meinar?

8:03 PM  

Post a Comment

<< Home